Bótasvikarar gripnir í bólinu á Facebook 5. maí 2010 06:30 Mynd/AFP „
Það er aldrei viðunandi að fólk misnoti velferðarkerfið og sérstaklega ekki á tímum sem þessum," segir Sigríður Lillý Baldursdóttir, forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins, þar sem herör var skorin upp gegn bótasvindli. Að sögn Sigríðar hefur fjöldi bótasvikamála þrefaldast frá því að Tryggingastofnun tók fyrir um ári upp stóraukið eftirlit með samkeyrslu gagna innan stofnunarinnar og athugunum starfsmanna. Sigríður nefnir sem sérstaklega svæsið dæmi um bótasvindl tvær fimm barna fjölskyldur þar sem fjölskyldufeðurnir hafi skráð sig til málamynda utan heimilisins. Það hafi þeir gert til að fá aukinn barnalífeyri og meðlagsgreiðslur sem þeir sjálfir hafi síðan ekki endurgreitt eins og þeim bæri að gera. „Okkar eftirlitsfólk fann aðra fjölskylduna inni á Facebook. Það er kona sem á fjögur börn með manninum og eitt með öðrum. Hún segir að maðurinn búi ekki hjá þeim en hann hjálpi þeim af og til. En svo fannst Facebook-síða þessarar konu þar sem hún var með „litla krílið" eins og hún sagði í „mömmu og pabba rúmi" og mynd af henni með barnið og sveran trúlofunarhring. Þá var hún spurð um þennan trúlofunarhring og þetta „rúm mömmu og pabba". Við göngum svona langt," lýsir Sigríður. Þessi fjölskylda fékk að sögn Sigríðar yfir 700 þúsund krónur á mánuði í bætur. Verulegan hluta þess hafi þau ekki átt rétt á að fá. „Þetta er algerlega óviðunandi. Við hundeltum þetta fólk og látum það ekki í friði," segir forstjóri TR sem kveður eftirlitsstarfinu fjötur um fót að mega ekki samkeyra gögn með gögnum annarra stofnana. „Við eigum í ákveðnum erfiðleikum en það er verið að vinna að lausn þeirra með félags- og tryggingamálaráðuneytinu og það er skilningur á þessu þar."- gar
Mest lesið Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Fleiri fréttir „Farið að líða mjög illa á sálinni að horfa á lík og sundurtætta líkama“ Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið Sjá meira