Ég yrði ómöguleg ef ég færi að læra eitthvað um listina 16. febrúar 2010 04:00 listin Kemur fram úr erminni Alþýðulistakonan Jenný sýnir í Gerðubergi. fréttablaðið/vilhelm
Jónína Katrín Jónsdóttir, Jenný, er sjálfmenntuð alþýðulistakona. Hún sýnir verk sín í Gerðubergi um þessar mundir. „Það eru engar fyrirmyndir,“ segir alþýðulistakonan Jenný (Jónína Katrín Jónsdóttir), sem nú sýnir í Gerðubergi. „Ég byrjaði bara á þessu allt í einu því ég hafði ekkert að gera. Var búin að prjóna peysur og sauma en var orðin leið á því. Ég átti tauliti og fékk mér léreft inn í skáp og byrjaði að mála. Þetta bara kom einhvern veginn. Svo fór ég að leika mér með akrýl á striga og svo hef ég límt myndir á striga og málað með akrýl á milli og stundum með krít. Þetta er bara skemmtilegt.“ Jenný segist hafa verið þunglynd þegar henni var boðið að sýna í Gerðubergi og því kallar hún sýninguna „Það kviknaði líf“. „Ég málaði mikið. Það eru einhverjar 20-30 myndir á sýningunni og það hefur gengið vel að selja. Það eru ellefu seldar, enda eru þær á góðu verði. Þetta er fyrsta einkasýningin mín og það er bara mjög gaman að standa í þessu.“ Jenný er sjálfmenntuð í listinni. „Ég hef satt best að segja engan áhuga á að mennta mig því þetta kemur bara fram úr erminni. Ég byrja og svo kemur þetta bara. Ég held ég yrði bara ómöguleg ef ég færi að læra eitthvað. Ég verð að leika mér með litina sjálf. Ég fór reyndar á eitt námskeið en það kom ekkert flott út úr því. Þá urðu myndirnar bara líkar einhverju öðru. Ég vil það ekki.“ Jenný er fædd á Sauðárkróki árið 1955. Hún er snyrtifræðingur að mennt og lærði í því námi litafræði. Sýningin í Boganum í Gerðubergi stendur yfir til 21. mars.drgunni@frettabladid.is
Mest lesið Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Lífið Ein pilla dró Panettiere til dauða Lífið „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Lífið Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum Lífið Ed Sheeran sparkar Macklemore Lífið „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ Tónlist Húðdrottning bauð í gellugusu Lífið 50+: Svefnherbergisskilnaður Áskorun Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Lífið Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Sjá meira