Fótbolti

Arjen Robben ekki með Hollandi í fyrsta leik HM í dag

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Félagarnir Robben og van Bommel.
Félagarnir Robben og van Bommel. GettyImages
Arjen Robben er ekki í byrjunarliði Hollendinga sem mæta Japan í fyrsta leik HM núna klukkan 11.30. Robben er enn meiddur en ekki var tekin ákvörðun um að nota hann ekki fyrr en í morgun.

 Hollendingar stilla upp sama liði og vann Dani 2-0.

Japan vann Kamerún 1-0 og eru bæði lið því með þrjú stig. Liðið sem vinnur er því langt komið með að tryggja sig áfram.

Lið Hollands: Maarten Stekelenburg, Gregory van der Wiel, Johnny Heitinga, Joris Mathijsen, Giovanni v. Bronckhorst , Nigel de Jong, Mark van Bommel, Dirk Kuyt, Wesley Sneijder, Rafael van der Vaart, Robin van Persie.

Lið Japans: Eiji Kawashima, Yuto Nagatomo, Yuji Nakazawa, Tulio, Yuichi Komano, Yuki Abe, Daisuke Matsui, Keisuke Honda, Makoto Hasebe, Yasuhito Endo, Yoshito Okub.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×