Sex á Havaríi 6. febrúar 2010 04:30 Verk eftir Elínu Hansdóttur.
Enn heldur fjörleg myndlistarstarfssemin áfram í Havaríi í Austurstrætinu. Í dag opnar sýning sex ungra kyndilbera íslensku myndlistarsenunnar. Sexmenningarnir eiga það nær allir sameiginlegt að hafa látið til sín taka á öðrum sviðum listarinnar. Það er eiginlega bara Davíð Örn Halldórsson, sem hefur einbeitt sér að myndlistinni. Hans stóru litríku málverk hafa slegið í gegn að undanförnu. Nú má einnig sjá verk eftir hann á sýningunni Ljóslitlífun í Hafnarhúsinu. Þetta er í annað sinn sem hann sýnir í Havaríi. Elín Hansdóttir er sístækkandi nafn í hinum alþjóðlega listaheimi. Innsetningar hennar vekja athygli hvert sem þær fara. Eflaust kannast margir við við Elínu úr kvikmynd Dags Kára Sigurðssonar; Nóa albínóa, en þar lék hún sjoppustelpuna Írisi. Kvikmyndatengsl má einnig finna í Bjarna Massa. Hann er einn af meðlimum kvikmyndagrúppunnar Lortur. Massinn er þekktur fyrir ást sína á landsbyggðinni og nú er það Flateyri sem kallar. Fannst Massanum viðeigandi að henda upp nokkrum verkum til að minna á sig áður en hann lætur sig hverfa vestur í nokkra mánuði. Pétur Már Gunnarson er einn af heilunum á bakvið DVD tímaritið Rafskinnu. Hann sýnir skúlptúra og myndir. Þá eru það poppararnir. Egill Sæbjörnsson átti stórleik á síðasta ári. Gaf út plötu og hélt stóra einkasýningu í Listasafni Reykjavíkur. Þá kom út bók um verkin hans og RÚV sýndi heimildarmynd um hann í desember. Hann sýnir fótósjoppaðar ljósmyndir af sjálfum sér á baðströndum. Örvar Þóreyjarson Smárason er öllu þekktari fyrir framlag sitt til íslenskrar dægurtónlistar, enda í múm og FM Belfast. Teikningar eftir Örvar hafa birst í bókum, á plötuumslgöum og á sýningum víða um heim. Og nú sýnir hann í Havaríi.- drg
Mest lesið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Britney farin í meðferð Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Fleiri fréttir Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Sjá meira