Eðlilegra væri að fá að kjósa um virkjun 4. maí 2010 03:15 Landsvirkjun er tilbúin til að greiða kostnað við vatnsveitu í Flóahreppi, og telur það hluta af mótvægisaðgerðum vegna fyrirhugaðrar Urriðafossvirkjunar. Fréttablaðið/Anton
Sveitarstjórn Flóahrepps hefur skuldbundið hreppinn til að greiða vel á þriðja hundrað milljóna króna fyrir vatnsveitu verði Urriðafossvirkjun ekki sett á aðalskipulag hreppsins. „Okkur finnst þetta hreinlega ekki lýðræðislegt,“ segir Svanhvít Hermannsdóttir. Hún skipar fyrsta sætið á lista T-framboðsins, sem er andvígt Urriðafossvirkjun. „Það sem vekur fyrst og fremst undrun okkar er að þetta skuli vera keyrt í gegn mánuði fyrir kosningar, og án allrar umræðu.“ Urriðafossvirkjun er eitt af stóru kosningamálunum í hreppnum, og segir Svanhvít að eðlilegt hefði verið að leyfa íbúum að kjósa um stefnu sveitarfélagsins í þeim málum. Forsvarsmenn Flóahrepps og Árborgar undirrituðu samning um vatnveitu 26. apríl síðastliðinn. Í samningnum, sem Fréttablaðið hefur undir höndum, kemur fram að hann er óuppsegjanlegur. Komist andstæðingar virkjunarinnar til valda eftir kosningar verða þeir annaðhvort að samþykkja Urriðafossvirkjun eða greiða kostnaðinn við vatnsveituna að fullu. Vatnsveitan verður hluti af mótvægisaðgerðum Landsvirkjunar vegna Urriðafossvirkjunar. Komist virkjunin á aðalskipulag mun Landsvirkjun því greiða allan kostnað við vatnsveituna. Vatnið mun koma frá Árborg, en vatnsskortur hefur verið í Flóahreppi á þurrkaköflum síðustu sumur. Þar kemur fram að framkvæmdir verði á þessu ári og því næsta. Kostnaður við vatnsveituna verður 117 milljónir króna á þessu ári. Aðalsteinn Sveinsson, oddviti Flóahrepps, segir að kostnaður á næsta ári verði svipaður, og heildarkostnaður því á bilinu 200 til 300 milljónir króna. Þetta eru háar fjárhæðir fyrir 600 manna sveitarfélag, segir Svanhvít. Hún vill að rannsakað verði til hlítar hvort hægt sé að bora eftir köldu vatni í sveitarfélaginu og spara með því mikið fé. Aðalsteinn segist ekki viss um að hægt hefði verið að afla sveitarfélaginu vatns með ódýrari hætti, í það minnsta ekki með jafn góðum og öruggum hætti. Spurður hvers vegna svo umdeild ákvörðun sé tekin aðeins mánuði fyrir kosningar segir Aðalsteinn að örlögin hafi einfaldlega hagað málum þannig. Til hafi staðið að ljúka málinu fyrr, en það hafi ekki tekist. Sveitarstjórn Flóahrepps hefur enn ekki staðfest samninginn, en hann verður tekinn fyrir á fundi annað kvöld. brjann@frettabladid.is
Mest lesið „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Innlent Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Innlent Slökktu eld á Kársnesi Innlent Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Innlent Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Innlent Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur Innlent Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Innlent Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Innlent Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dag Innlent Lokanir á Arnarnesvegi og við Sundagarða Innlent Fleiri fréttir Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Slökktu eld á Kársnesi Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Lokanir á Arnarnesvegi og við Sundagarða Varað við vindhviðum á Vestfjörðum Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dag Áhættumat byggir ekki lengur bara á vísindalegu mati Tíu sakborningar í fjárkúgunarmáli og íbúar ósáttir í Hamraborg „Það bara fannst ekki neitt“ Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Gísli Rafn vill leiða stofnun atvinnuveganna Svandís segir nei Héraðssaksóknari með meint kynferðisbrot leikskólastarfsmanns á sínu borði Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Yfirfullir fangaklefar til trafala í innbrotahrinunni Bændur kynna ESB skýrslu og fullir fangaklefar Venjuleg sólgleraugu duga ekki til þann 12. ágúst Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Íslendingur í Danmörku fékk ekki að vera á kjörskrá Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur 51 prósent sé nóg Bein útsending: Kynna skýrslu um áhrif ESB á bændur Óvenju annasamur júlí á fæðingardeild Landspítala Yngsta barnið sem fékk boð um pláss fimmtán mánaða Á annað hundrað leituðu til HSU yfir verslunarmannahelgina Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastali tókst á loft Sjá meira