Sálin tekur upp með Stórsveit Reykjavíkur 14. júní 2010 11:00 Hljómsveitin Sálin hans Jóns míns gefur út sína fyrstu hljóðversplötu í fjögur ár fyrir næstu jól.
Hljómsveitin Sálin hans Jóns míns gefur út sína fyrstu hljóðversplötu í fjögur ár fyrir næstu jól. Platan verður unnin með Stórsveit Reykjavíkur og mun Samúel Jón Samúelsson, sem hefur spilað töluvert með Sálinni, annast útsetningar. Upptökur hefjast í júlí. „Það er mikið brass í Sálinni þannig að við ákváðum að fara með þetta alla leið," segir gítarleikarinn Guðmundur Jónsson. „Fyrsta platan okkar var í brassi og þetta er mikill og stór hluti af okkar sándi. Þetta passar alveg við það sem við höfum verið að gera. Við erum líka að reyna að víkka tónmálið okkar út." Jóhann Hjörleifsson, trommari Sálarinnar, er einnig í Stórsveit Reykjavíkur og því þótti það vel við hæfi að fá hana í verkefnið. „Þetta verður ekki klassísk big band-músík heldur reynum við að hafa þetta blöndu af Stórsveitinni og Sálar-poppinu. Ég veit ekki hvernig þetta virkar en ég vona það besta. Það er alltaf gaman að geta tekið áhættu." Kiddi í Hjálmum tekur plötuna upp í Hljóðrita, þar sem Sálin hefur áður unnið. „Það er mjög gaman að vinna með honum og taka upp í Hljóðrita. Það er langt síðan Sálin hefur unnið þarna og þetta er mjög skemmtilegt hljóðver." Guðmundur vonast til að fyrsta lagið komi út í september og platan komi síðan út fyrir jólin. Sálin ætlar að vera dugleg við spilamennsku í sumar og næst spilar hún á Selfossi um helgina á mikilli hátíð þar í bæ. -fb
Mest lesið Einn frægasti köttur landsins sló í gegn á dögunum Lífið Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Lífið Emúinn í dyragættinni reyndist eiga heima á Drunk Rabbit Lífið Katrín og Þorgerður gáfu syninum nafn Lífið Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Lífið Próteinbollur að hætti Gumma kíró Lífið „Best að vera allsber úti í náttúrunni“ Tíska og hönnun Barbie dúkka með sykursýki týpu eitt Lífið „Pabbi minn vakir yfir mér“ Lífið Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Lífið Fleiri fréttir Einn frægasti köttur landsins sló í gegn á dögunum Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Emúinn í dyragættinni reyndist eiga heima á Drunk Rabbit Barbie dúkka með sykursýki týpu eitt Próteinbollur að hætti Gumma kíró Katrín og Þorgerður gáfu syninum nafn Hanna Katrín heiðursgrillari á Kótelettunni „Pabbi minn vakir yfir mér“ Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Skákborðsréttir nýjasta matartískan Tímalausar og fallegar brúðargjafir Þórdís Elva fann ástina í örmum poppstjörnu Eins og ef Laddi hefði hvatt krakka til að reykja krakk eða sígarettur Perry og Bloom saman á snekkju Bezos Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Aðalsteinn og Elísabet selja íbúðina Sumarsalat sem lætur bragðlaukana dansa Bjössi og Dísa í carnival stemningu í miðbænum Samdi CIA lag Scorpions, Wind of Change, til að fella Sovétríkin? Stjörnulífið: „Grín sem gekk allt of langt“ „Síðustu tíu árin hafa verið erfið“ „Það segir eitthvað að þetta sé fjórtánda sumarið“ Varð mjög hræddur en fann huggun í húmornum Krakkatían: Tölur, mýs og tónlist Julian McMahon látinn Var orðið að spurningu um líf og dauða Fréttatía vikunnar: Andlát, fyllerí og fiskur Aron Kristinn orðinn pabbi Vonbrigði að aðeins tvær konur komi fram á Kótelettunni Sjá meira