Koma fram í kraftgöllum í Noregi 13. júlí 2010 08:15 Captain Fufano kemur fram á tónlistarhátíðinni Insomnia í Noregi næsta haust. „
Við vorum að fá staðfestingu frá Norðmönnum um að við erum bókaðir á Insomnia tónlistarhátíðina næsta haust," segir Hrafnkell Flóki Einarsson sem ásamt Guðlaugi Halldóri Einarssyni skipar raftónlistardúóið Captain Fufanu sem spilar í fyrsta sinn á erlendri grundu í haust. Nánar tiltekið á Insomnia tónlistarhátíðinni í Tromsö í Noregi. Íslenska sveitin FM Belfast spilaði á hátíðinni árið 2008 og norsku sveitirnar Datarock og Röyksopp hafa einnig komið þar fram á síðustu árum. „Við vorum að spila mikið í kringum Airwaves í fyrra og þar kom kona frá Noregi og sýndi okkur mikinn áhuga. Svo hafði hún samband í vor og bauð okkur að spila á þessari hátíð," segir Hrafnkell en hann er sonur tónlistamannsins og borgarfulltrúans Einars Arnar Benediktssonar og hefur oft komið fram með föður sínum á tónleikum. Meðal annars spilar Hrafnkell á trompet með hljómsveitinni Ghostigital með föður hans í farabroddi. Þetta er því ekki í fyrsta sinn sem hann spilar á erlendri grundu. „Þetta er í fyrsta sinn sem ég spila úti á eigin vegum og við félagarnir erum mjög spenntir. Þetta er bara byrjunin," segir Hrafnkell sposkur en hljómsveitin Captain Fufanu var stofnuð árið 2008. „Við spilum svona „experimental deep house" tónlist. Gerum takta í tölvunni og tökum svo í nokkur hljóðfæri inn á milli." Tromsö er eins konar höfuðborg Norður-Noregs og þar getur orðið mjög kalt á veturna og sólarljósið er takmarkað yfir vetrartímann en hátíðin er haldin í október. „Við erum búnir að ákveða að koma fram í íslenskum kraftgöllum, helst í neon lit," segir Hrafnkell. Sveitin er um þessar mundir að einbeita sér að því að semja nýja tónlist.
Mest lesið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Menning Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Lífið Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Lífið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Lífið Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Gagnrýni Fleiri fréttir Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Sjá meira