Grant gerir upp fortíðina 9. desember 2010 12:00 Bandaríski tónlistarmaðurinn hefur vakið mikla athygli fyrir sína nýjustu plötu.
John Grant á bestu plötu ársins að mati breska tónlistartímaritsins Mojo. Þar slær þessi áður óþekkti tónlistarmaður við stórum nöfnum á borð við Arcade Fire og MGMT. Bandaríski tónlistarmaðurinn John Grant hefur fengið frábæra dóma fyrir sína fyrstu sólóplötu, Queen of Denmark, sem kom út í apríl síðastliðnum. Á nýjum lista breska tímaritsins Mojo yfir bestu plötur ársins skákar þessi áður óþekkti tónlistarmaður risunum Arcade Fire og MGMT og trónir óvænt í efsta sætinu. Tímaritið Q er einnig hrifið af plötunni því þar nær hún sjötta sætinu yfir þær bestu á árinu. Önnur blöð sem hafa hælt gripnum eru NME og The Guardian í Bretlandi sem gáfu henni fjórar stjörnur af fimm mögulegum. Queen of Denmark var tekin upp í samstarfi við þjóðlagarokkarana Midlake frá Texas. Meðlimir sveitarinnar sáu Grant á tónleikum og heilluðust upp úr skónum af baritónrödd hans og fáguðum, sorglegum lögunum. Þeir buðu honum með sér á tónleikaferð og fengu hann síðan til að taka upp sína fyrstu sólóplötu í þeirra eigin hljóðveri. Sjálfir spiluðu þeir undir í lögunum tólf sem heyra má plötunni. Hinn 41 árs Grant er fyrrum forsprakki hljómsveitarinnar The Czars, sem aldrei náði að slá í gegn og hætti á endanum störfum 2004. Áður en Midlake sá hann spila íhugaði hann að gefa tónlistina upp á bátinn en sem betur fer gafst hann ekki upp og ákvað að halda áfram einn og óstuddur. Queen of Denmark er afar persónuleg plata þar sem Grant gerir upp fortíðina og syngur um baráttu sína við áfengis- og eiturlyfjafíkn, misheppnuð ástarsambönd og um það hvernig hann tókst á við samkynhneigð sína. Þar hjálpaði það honum ekki að vera alinn upp í trúaðri fjölskyldu í miðvesturríkjum Bandaríkjanna. Platan er nokkuð undir áhrifum bandarískrar þjóðlagatónlistar áttunda áratugarins og hafa gagnrýnendur líkt Grant við The Carpenters og Harry Nilsson. Einnig sjá þeir líkindi með honum og þeim Gilbert O"Sullivan, Dennis Wilson og Jeff Buckley. Einn gagnrýnandinn nefnir að einu mistök rokkaranna í Midlake, ef mistök skyldi kalla, væru að þeir skyldu hafa hjálpað Grant að búa til plötu sem væri betri en þeirra eigin verk. Til marks um það nær þriðja plata Midlake, The Courage of Others, „aðeins“ sjöunda sæti á árslista Mojo á meðan Grant horfir glaður af toppnum niður til velgjörðarmanna sinna. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Að vera neitað um listamannalaun reyndist algjör frelsun Lífið Festist í lyftu í New York Lífið „Ég er pottþétt ekki á leiðinni til Íslands“ Lífið Tímabilið sem flestir vilja gleyma Lífið Krakkatía vikunnar: Fáni, Esbjerg og Ormstunga Lífið Alma stolt af syninum Lífið Tæplega 28 þúsund í mat á mánuði: „Hvar voru þið að svindla?“ Lífið Söngvari 3 Doors Down látinn Lífið Gerði leigusamning við krabbameinið Lífið Hamilton ætlar ekki að bruna Lífið Fleiri fréttir Hamilton ætlar ekki að bruna Tímabilið sem flestir vilja gleyma Festist í lyftu í New York Að vera neitað um listamannalaun reyndist algjör frelsun Krakkatía vikunnar: Fáni, Esbjerg og Ormstunga Þúsund hlauparar í stuði í Norðurljósahlaupi ON Söngvari 3 Doors Down látinn „Ég er pottþétt ekki á leiðinni til Íslands“ Alma stolt af syninum Hitnar í kolunum hjá Heated Rivalry-stjörnum? Gerði leigusamning við krabbameinið Fréttatía vikunnar: Framsókn, Epstein-skjölin og Dagur Sig Tæplega 28 þúsund í mat á mánuði: „Hvar voru þið að svindla?“ Karlmennskan rís úr öskunni Sjö dýrustu eignirnar sem seldust árið 2025 Alan Carr á Íslandi „Ungir drengir eru búnir að láta segja sér að þeir séu eitraðir“ Gummi Emil á leið í fæðubótarefnin Fannar og Vala keyptu fyrir 170 milljónir í Kjalarlandi Hefur verið 73 kíló í 55 ár en bætti aðeins á sig þegar bjórinn var leyfður Viðar Örn hefur störf á Sólheimum Geoff og Ásta Margrét nýtt par Prinsinn og prinsessan ætla að flytja heim á næsta ári Vill 700 milljónir fyrir höllina Drengurinn sem dó Nakinn á kóræfingu Laufey fékk sæta kveðju frá yngsta Grammy-verðlaunahafa sögunnar „Skýið er bleikt og við erum sannarlega enn þá á því skýi og í sjokki“ Síðasti leynigesturinn opinberaður „Hvernig ég er að gera þetta núna er ekki hægt til lengri tíma“ Sjá meira