Vinir Endless Dark í vanda 8. júlí 2010 03:15 Matthew Leone (til vinstri) og tvíburabróðir hans Nathan á góðri stundu. Matthew er á batavegi eftir að hafa orðið fyrir líkamsárás.nordicphotos/getty
Matthew Leone, bassaleikari bandarísku rokksveitarinnar Madina Lake, er á batavegi eftir að hafa orðið fyrir alvarlegri líkamsárás á dögunum. Leone sá náunga nokkurn lúskra á eiginkonu sinni skammt frá íbúð sinni í Chicago og ákvað að skipta sér af. Maðurinn kunni ekki að meta það og fór illa með Leone og skildi hann eftir margbrotinn og meðvitundarlausan. Madina Lake er á tónleikaferðalagi í Bretlandi um þessar mundir án Leone og eins og kom fram í Fréttablaðinu spila vestfirsku rokkararnir í Endless Dark með sveitinni á nokkrum tónleikum þar í landi á næstunni. Samkvæmt tvíburabróður Leone og söngvara Madina Lake, Nathan, er bassaleikarinn allur að braggast en læknar þurftu að fjarlægja hluta af höfuðkúpu hans til að losa um þrýsting á heilann, sem var stokkbólginn. „Fyrstu dagana þekkti hann mig ekki og það kom ekkert af viti upp úr honum. Núna er hann byrjaður að tala og hreyfa sig, sem er yndislegt. Þannig að horfurnar eru betri með hverri klukkustundinni sem líður,“ sagði hann. Madina Lake var stofnuð í Chicago árið 2005 af Leone-tvíburunum og tveimur öðrum strákum. Matthew og Nathan vöktu fyrst athygli fyrir þátttöku sína í sjónvarpsþáttunum Fear Factor. Þeir notuðu peninginn sem þeir þénuðu þar í prufuupptökur fyrir nýju hljómsveitina sína. Núna hefur Madina Lake gefið út tvær hljóðversplötur og nýtur töluverðrar hylli í Bretlandi. Fyrir þremur árum var hún kjörin besti erlendi nýliðinn á Kerrang!-tónlistarverðlaunahátíðinni þar í landi.
Mest lesið Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Tónlist Ætlar að ná styrk í fingurna til að geta greitt dótturinni Lífið Gamli er (ekki) alveg með'etta Gagnrýni Fellsmúlinn prýðir Instagramfærslu Justin Bieber Lífið Bieber gefur út óvænta plötu Lífið Upprunalega Birkin taskan seld á rúman milljarð Tíska og hönnun Eftirlætis náttúruperlur Ásu Steinars Lífið Borgin býður í tívolíveislu Tónlist Ragga Holm og Elma trúlofaðar Lífið Pfúff: Fjölskyldufrí og systkinin endalaust að rífast Áskorun Fleiri fréttir Ætlar að ná styrk í fingurna til að geta greitt dótturinni Ragga Holm og Elma trúlofaðar Eftirlætis náttúruperlur Ásu Steinars Bieber gefur út óvænta plötu Þúsundir mótmæla: Hætt við tónlistarhátíð þar sem Ye átti að koma fram Ný tónlistarhátíð í síldarverksmiðjunni á Hjalteyri Fellsmúlinn prýðir Instagramfærslu Justin Bieber Áhrifarík ræða Begga Ólafs: „Hvað myndi Batman gera?“ Besta sætið ekki nógu spennandi fyrir Hugh Grant Einhver áhætta fylgi öllum atriðum í sirkusnum Stefán Karl hefði orðið fimmtugur í dag Markús nýr safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Einn frægasti köttur landsins sló í gegn á dögunum Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Emúinn í dyragættinni reyndist eiga heima á Drunk Rabbit Barbie dúkka með sykursýki týpu eitt Próteinbollur að hætti Gumma kíró Katrín og Þorgerður gáfu syninum nafn Hanna Katrín heiðursgrillari á Kótelettunni „Pabbi minn vakir yfir mér“ Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Skákborðsréttir nýjasta matartískan Tímalausar og fallegar brúðargjafir Þórdís Elva fann ástina í örmum poppstjörnu Eins og ef Laddi hefði hvatt krakka til að reykja krakk eða sígarettur Perry og Bloom saman á snekkju Bezos Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Aðalsteinn og Elísabet selja íbúðina Sumarsalat sem lætur bragðlaukana dansa Sjá meira