Næsta Söngvakeppni verður á íslensku 2. júní 2010 07:00 Páll Magnússon hefur ákveðið að öll lögin í næstu Söngvakeppni Sjónvarpsins verði á íslensku. „
Röksemdin fyrir þessari breytingu er að Söngvakeppni Sjónvarpsins er fyrst og fremst íslensk söngvakeppni fyrir íslenska áhorfendur," segir Páll Magnússon, útvarpsstjóri. Öll lög í næstu Söngvakeppni Sjónvarpsins verða að vera sungin á íslensku ólíkt því sem hefur verið undanfarin ár. Páll segir að vegna þrýstings frá Félagi tónskálda og textahöfunda, FTT, hafi verið fallið frá þessari kvöð á sínum tíma. Niðurstaðan af þeirri ákvörðun hafi hins vegar verið vond, fá lög hafi verið sungin á íslensku. „Síðast var aðeins eitt í úrslitaþættinum og það er óviðunandi að okkar mati." Páll tekur fram að séu lögin sungin á íslensku, og Söngvakeppni Sjónvarpsins notuð sem nokkurs konar forkeppni fyrir Eurovision, taki RÚV þátt í kostnaði við að útfæra sigurlagið á ensku. „En við gætum hugsanlega valið framlagið með allt öðrum hætti þótt sigurlag í Söngvakeppninni sé fundið." Jakob Frímann Magnússon, formaður FTT, segir afar skiptar skoðanir um þetta mál, bæði innan FTT og samfélagsins alls. „Við virðum sjónarmið Ríkisútvarpsins og treystum því að metnaður þeirra nái ekki aðeins til innlendrar dagskrárgerðar heldur einnig til tryggingar þess marktækasta og best ígrundaða framlags Íslands á alþjóðavettvangi sem okkur ber að stefna að hverju sinni," segir Jakob og vísar þar til Eurovision-lagsins. „Þetta kann að fara saman en annað tryggir ekki endilega hitt," segir Jakob sem kaus að öðru leyti að tjá sig ekki um málið.- fgg
Mest lesið Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Lífið Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Lífið Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Lífið Seyfried syrgir Finn sinn Lífið „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Lífið Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Lífið Gosling verður Skrattakollur Bíó og sjónvarp Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Lífið Optical Studio með vinsælan Pop Up markað með allt að 70% afslætti Lífið samstarf Emma Roberts gengin í það heilaga Lífið Fleiri fréttir Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Seyfried syrgir Finn sinn Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Emma Roberts gengin í það heilaga „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Krakkatía vikunnar: Rottur, froða og þyrnihrós Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið Sjá meira