Kenna ungu fólki að elda fisk 19. febrúar 2010 03:00 Sælkerinn og kokkurinn Áslaug Snorradóttir vonast til að geta boðið upp á rjómatertu í einhverjum þáttunum en Sveinn Kjartansson frá Fylgifiskum ætlar að kenna fólki að elda fisk á fjölbreyttan hátt.Fréttablaðið/Anton
Sveinn Kjartansson, eigandi Fylgifiska, og Áslaug Snorradóttir ætla að kenna Íslendingum að elda fjölbreytta fiskrétti í nýjum sjónvarpsþáttum sem sýndir verða á RÚV. „Þessi hugmynd spratt upp úr rannsókn sem MATÍS vann og leiddi það í ljós að fólk á aldrinum 18-25 ára borðar sirka einn munnbita af fisk á viku,“ segir Margrét Jónasdóttir en hún framleiðir nýja sjónvarpsþætti sem sýndir verða á RÚV og eiga að leiða fólk í allan sannleika um hvernig sé hægt að matbúa fisk á fjölbreyttan hátt. Áslaug Snorradóttir, matgæðingur og ljósmyndari, og Sveinn Kjartansson, eigandi Fylgifiska, verða stjórnendur þáttarins en það er Hrafnhildur Gunnarsdóttir sem leikstýrir þeim. Þættirnir verða alls átta og eru 25 mínútna langir. Áslaug og Sveinn voru á leiðinni í Hvalfjörðinn þegar Fréttablaðið náði tali af þeim en þar ætluðu þau að tína krækling. „Vonandi verða þessir þættir til þess að fólk fari að borða meiri fisk,“ segir Áslaug sem þykir nauðsynlegt að benda á aðrar eldunaraðferðir fisksins en að sjóða hann í pott eða steikja upp úr raspi. Áslaug telur raunar sorglegt hversu lítið Íslendingar borði fisk og rifjar í því sambandi upp litla dæmisögu um íslenskan námsmann sem bjó með fjölþjóðlegu liði á háskólaárum sínum erlendis. „Allir elduðu sinn þjóðarrétt og biðu spenntir eftir því að fá að smakka einhvern framandi fiskrétt frá henni en hún kunni ekkert að matreiða slíkt og skammaðist sín hálfpartinn fyrir það,“ segir Áslaug og vonar að það eigi eftir að breytast með þessum þáttum. Íslendingar hafa löngum hreykt sér af því að vera mikil fiskiþjóð en Áslaug bendir á að við borðum lítinn fisk. „Við snobbum svo mikið fyrir útlöndum, þetta tímabil krókódílakjöts og kengúra er búið, það er fínt að fá sér krókódílakjöt í Flórída og kengúrulæri í Ástralíu en við eigum ekkert að þurfa að flytja þennan mat inn,“ segir Áslaug og bætir því við að Íslendingar séu tiltölulega nýbyrjaðir að elda og hafa gaman af því að borða. „Það er fyrst núna sem það er að skapast einhver stemning í kringum matarvenjur.“ freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Lífið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Lífið Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Lífið Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Menning Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Lífið Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Lífið Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Lífið Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Lífið Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Lífið Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“ Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Sjá meira