Sexí túba og það sem hverfur 13. febrúar 2010 05:00 Það sem hverfur-hópurinn Á Vetrarjazzi annað kvöld.
Vetrarjazzinn heldur áfram um helgina með spennandi og fjölbreyttri kvölddagskrá á Café Kúltúru. Þeir sem koma fram eru Hljómsveit Kristjönu Stefánsdóttur, Fönksveinar og B3 tríóið í kvöld og Tríó Eyþórs Gunnarssonar og ungir sólistar undir dyggri handleiðslu Andrésar Þórs og hljómsveitar spreyta sig annað kvöld. Tvö af heitustu djassböndum Norðurlanda leika svo í Norræna húsinu kl. 17 í dag, tríóin Pelbo og Plop. Norska sveitin Pelbo er hljómsveit með óvenjulega hljóðfæraskipan, rödd, „sexí“ túbu og trommur! Tónlistin er að sama skapi óvenjuleg. Lifandi hljóðfærum er spyrnt saman við elektróník og óvægna sviðsframkomu og mun útkoman engu lík. Finnska tríóið Plop er öllu hefðbundnara djasstríó. Þar er saxófónleikarinn Mikko Innanen í fararbroddi með öflugt riþmapar að baki. Plop hefur starfað í þrjú ár og leitar hins gullna jafnvægis á milli fyrirfram ákveðinna tónsmíða og þeirra sem fæðast á sviðinu. Í tilefni af útkomu geisladisksins „Það sem hverfur“ verður svo efnt til tónleika í Þjóðmenningarhúsinu kl. 20 á sunnudagskvöldið. Ný tónlist Sigurðar Flosasonar við eyðibýlaljóð Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar verður flutt, en efnið kom út á samnefndum geisladiski í nóvember. Þetta er dramatísk tónlist þar sem djass, popp, sígild tónlist og þjóðleg stef renna saman og skapa bræðing sem hæfir efninu vel. Flytjendur eru söngvararnir Ragnheiður Gröndal og Egill Ólafsson, Sigurður Flosason á ýmis blásturshljóðfæri, Kjartan Valdemarsson á píanó og hljómborð og Matthías Hemstock á trommur, trommuheila og náttúruhljóð. - drg
Mest lesið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Lífið Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Lífið Allir og amma þeirra í bókaklúbb Lífið Fleiri fréttir Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Sjá meira