Úr vöðvabúnti í kryppling 10. júlí 2010 06:00 Jón gunnar þórðarson Eyþór Ingi var ekki nógu stæltur í hlutverk Rocky að mati Jóns Gunnars. „
Ég gæti ekki verið hamingjusamari með þessa skiptingu,“ segir tónlistarmaðurinn Eyþór Ingi Gunnlaugsson. Hann leikur krypplinginn Riff Raff í stað hins fullkomna karlmanns Rocky í söngleiknum Rocky Horror sem verður frumsýndur hjá Leikfélagi Akureyrar 10. september. Eyþór Ingi var upphaflega ráðinn til að leika Rocky en þótti ekki henta í hlutverkið. „Ég var búinn að furða mig á því og grínast með að leikstjórinn væri greinilega ekki með á hreinu í hvaða formi ég væri. Þegar hann hefur loksins séð mig hefur honum fundist eitthvað bogið við þetta,“ segir Eyþór Ingi og bætir við að hann sé miklu frekar í krypplingaformi. „Ég er miklu sáttari við þetta hlutverk. Ég held að ég sé miklu meiri krypplingur en hinn fullkomni karlmaður. Þetta er líka meiri týpa og það eru skemmtilegri lög sem ég syng.“ Eyþór hefur legið yfir uppfærslum af Rocky Horror á hinum ýmsu tungumálum að undanförnu til að undirbúa sig fyrir nýja hlutverkið. „Ég ætla að leggja allt í þetta og gera þennan kryppling eins fullkominn og hinn fullkomni karlmaður ætti að vera.“ Jón Gunnar Þórðarson, leikstjóri verksins, fagnar þessu breytta hlutverki Eyþórs. „Söngröddin hans Riff Raffs er ótrúleg og þetta er flottur karakter. Þetta er stærra hlutverk sem hann fékk núna. Svo er það líka líkamsburðurinn. Hann er ekki alveg nógu stæltur í hlutverk Rocky. Við fáum vöðvabúnt í staðinn fyrir hann,“ segir hann og á þar við Hjalta Rúnar Jónsson. „Helsta vinnan hans er að lyfta þangað til við frumsýnum.“ - fb
Mest lesið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Allir komust lifandi út – nema Beethoven Gagnrýni „Við erum öll nóg“ Lífið Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Lífið „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið „Sjálfsvinna er ævistarf“ Lífið „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Lífið „Ég ræð ferðinni“ Lífið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið Fleiri fréttir Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Páskabingó Blökastsins Úr Brúðkaupsþættinum Já yfir í að þjálfa leiðtoga Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Mótefni gegn afmennskun og kúgun Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Hundrað skvísur blómstruðu saman Sjá meira