Fabregas: Ekkert unnið enn Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. júlí 2010 22:30 Cesc Fabregas í leiknum í kvöld. Nordic Photos / AFP
Cesc Fabregas ætlar ekki að fagna sigri of snemma þrátt fyrir gott gengi Spánverja á HM í Suður-Afríku. Spánn vann í dag Paragvæ, 1-0, í fjórðungsúrslitum HM og mætir Þýskalandi í undanúrslitum á miðvikudagskvöldið. Fabregas kom inn á sem varamaður fyrir Fernando Torres á 56. mínútu leiksins en David Villa skoraði eina mark leiksins á 82. mínútu. „Tilfinningin er góð en við höfum ekkert unnið enn," sagði Fabregas við fjölmiðla eftir leikinn. „Við erum ánægðir með sigurinn því þetta var erfiður leikur en við vitum að þýðir ekkert að komast í undanúrslitin ef við komumst svo ekki alla leið í úrslitaleikinn." „Þetta verður mjög erfitt gegn Þýskalandi þar sem að þetta er eitt besta varnarlið keppninnar. Við verðum bara að vera jákvæðir í okkar leik og ná okkar besta fram. Við viljum vinna þá." Vicente del Bosque landsliðsþjálfari var dauðfeginn eftir að leikurinn var flautaður af í kvöld. „Á mínum tíma sem landsliðsþjálfari hefur liðinu aldrei liðið jafn illa á vellinum og gefið jafn slæmar sendingar og við gerðum í kvöld. Þetta var afar erfitt og afar óþægilegur leikur. Við áttum þó von á þessu - þeir leyfðu okkur ekki að spila okkar leik," sagði del Bosque. „Þetta er frábært fyrir spænska knattspyrnu." Hann hrósaði einnig leikmönnum sínum eftir leikinn, sérstaklega Casillas og Villa. „Casillas var ótrúlegur og bjargaði glæsilega í tvígang. Villa er í toppformi og var aftur réttur maður á réttum stað. Við hefðum kannski átt að skora fyrr í leiknum en Villa hafði einfaldlega hungrið til að skora."
HM 2010 í Suður-Afríku Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Íslenski boltinn Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Enski boltinn Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Körfubolti Fleiri fréttir Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Dortmund tilkynnir komu Bjarka Hrafns Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Reyndu að brjótast inn í hús Yamals De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ „Mig dreymdi þetta“ „Svekkjandi er rétta orðið“ „Ég er feginn að vinna loksins á heimavelli“ Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ „Miður mín fyrir hönd allra“ Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Uppgjörið: ÍBV - Valur 2-1 | Ferskir Frakkar, eitraðar Eyjakonur og veiklulegur Valur „Stjörnuhrap“ í frönsku miðlunum FIFA rukkar tíu þúsund krónur fyrir að mæta á blaðamannafund Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 4-1 | Skoruðu þrjú á sjö mínútna kafla Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Skoða markaðinn til að þurfa ekki að gefa fleiri leiki Enskur úrslitaleikur gæti haft áhrif á Opna breska „Dramatískasta viðureignin í alþjóðafótboltanum“ Bauð miðalausum stuðningsmanni á undanúrslit heimsmeistaramótsins Balogun viðurkennir að inngrip Trumps hafi haft truflandi áhrif Spánverjar jöfnuðu heimsmet og geta slegið það í úrslitaleiknum „Dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar“ „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Maður dagsins á HM: Byrjaði hjá Barcelona en nú kominn til Real Madrid Sjáðu Stjörnuna stimpla sig í titilslag og Hamlett koma Fram af botninum Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Sjá meira