Lífið

Ari Eldjárn stóðst prófið í Lundúnum

Ari Eldjárn steig á svið í London og lagði í erfiðar fimm mínútur.
Ari Eldjárn steig á svið í London og lagði í erfiðar fimm mínútur.

„Ég er búinn að taka lítinn túr, prófa uppistand á ensku og hitta vini mína,“ segir uppistandarinn Ari Eldjárn.

Ari hélt á dögunum til Lundúna þar sem hann tróð upp með stutt uppistand á nokkrum litlum klúbbum í borginni. Hann var svo staddur á klúbbnum The Comedy Store á mánudagskvöld þegar sjálfboðaliða var boðið að stíga á svið og skemmta í fimm hrikalegustu mínúturnar í höfuðborginni. Þá fá áhorfendur í klúbbn­um skotleyfi á skemmtikraftana og algengt er að þeir séu baulaðir niður áður en þeir byrja. „Ég rauk upp á svið,“ segir Ari. „Ég hjólaði í þá og keyrði í fjórar mínútur.“

Eins og við mátti búast fékk Ari að finna fyrir því að vera Íslendingur, en hann lét það ekki á sig fá. „Hann heimtaði að fá Icesave-peninginn sinn aftur. Ég gaf honum þúsundkall og hann reif seðilinn í sundur fyrir framan nefið á mér. Þá tók ég hann í gegn,“ segir hann.

Ari er í uppistandshópnum Mið-Ísland og hefur meðal annars náð að fullkomna Bubba Morthens-eftirhermu við góðar undirtektir áhorfenda. Í London hermdi hann eftir söngvaranum Morrissey með frábærum árangri svo góðum að áhorfendur þökkuðu fyrir sig með dynjandi lófataki. Honum var svo vísað af sviðinu þegar fjórar mínútur og 57 sekúndur voru liðnar, en þá hafði hann tilkynnt að hann ætti því miður ekki meira efni. Áhorfendur urðu afar óánægðir og bauluðu þegar starfsmaður sló í gong, sem gefur til kynna að skemmtikraftar eiga að yfirgefa sviðið. - afb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.