Fótbolti

Drogba styður Anelka

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Blaðamenn og ljósmyndarar sátu um Anelka er hann lenti á Heathrow-flugvelli.
Blaðamenn og ljósmyndarar sátu um Anelka er hann lenti á Heathrow-flugvelli.

Didier Drogba stendur við bakið á liðsfélaga sínum hjá Chelsea, Nicolas Anelka, en Anelka var rekinn úr franska landsliðinu um helgina eftir að hafa lent í heiftarlegu rifrildi við landsliðsþjálfarann, Raymond Domenech.

"Nicolas hefur verið liðsfélagi minn í tvö og hálft ár. Ég styð hann. Ég óska honum velgengnis en veit að hann er fara í gegnum erfiða tíma. Hann er sterkur persónuleiki og það kemur mér á óvart að honum hafi verið sparkað úr landsliðinu," sagði Drogba.

Það er algjör upplausn í franska landsliðinu og Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, hefur beðið íþróttamálaráðherra landsins að skipta sér af málum landsliðsins en leikmenn liðsins neituðu að æfa í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×