Efnilegir gestir í Tjarnarbíói 4. nóvember 2010 07:00 Margar erlendu hljómsveitanna hafa vakið athygli víðs vegar í Evrópu. Þær spila á tónleikum í Tjarnarbíói á föstudagskvöldið. Fréttablaðið/valli
Listahátíðin Unglist hefst á föstudaginn en hátíðin, sem er árviss viðburður á vegum Hins hússins, er nú haldin í nítjánda skipti. Í tengslum við hátíðina eru hér á landi fimm erlendar hljómsveitir sem eiga það sameiginlegt að hafa unnið keppni á borð við Músíktilraunir í heimalandi sínu. Það eru samtökin Stage Europe Network sem halda utan um allar þessar hljómsveitir en markmið samtakanna er að stuðla að virkri þátttöku ungs fólks í tónlist víðs vegar að um Evrópu. Blaðamaður Fréttablaðsins spjallaði við forsprakka hljómsveitanna í vikunni, en þær munu koma fram á tónleikum í Tjarnarbíó á föstudagskvöldið. „Við ætlum að spila eitthvað ferskt,“ segir Elvin Usidame, söngvari hollensku hljómsveitarinnar Hunting the Robot, og kveðst spenntur fyrir tónleikunum. Margar þessara hljómsveita hafa gert það gott víðs vegar um Evrópu og fá nú tækifæri til að sanna sig á Íslandi. Það er því forvitnilegt að vita hvort þessir ungu tónlistarmenn hafi eitthvað kynnt sér íslenska tónlist og því svara þeir játandi. „Múm er í miklu uppáhaldi,“ segir Paul Trevor Robbins, bassaleikari norsku hljómsveitarinnar World Service, og bætir við að hann hlusti einnig mikið á Sigur Rós og Björk. Ásamt Hunting the Robot og World Service munu franska hljómsveitin GERIKO, pólska hljómsveitin California Stories Uncovered og þýska hljómsveitin Kleinstadthelden einnig koma fram. Hljómsveitirnar verða hér á landi í viku og taka þátt í dagskrá á vegum Hins hússins. Þær eiga meðal annarra verkefna að vinna að eigin útsetningu á laginu Imagine eftir John Lennon, en hópurinn er nú þegar búinn að sigla til Viðeyjar og skoða friðarsúluna sem reist var í minningu Lennons. Hljómsveitirnar Of Monsters and Men og The Assassin of a Beautiful Brunette eru fulltrúar Íslendinga á tónleikunum á föstudaginn, en þær eiga það sameiginlegt að hafa tekið þátt í Músíktilraunum í ár. Sú fyrrnefnda lenti í fyrsta sæti og sú síðarnefnda í því þriðja. Báðar íslensku hljómsveitirnar hafa verið í verkefnum erlendis á vegum Stage Europe Network. Tónleikarnir í Tjarnarbíó hefjast kl. 19.30 annað kvöld og það er ókeypis inn.- ka
Mest lesið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Lífið Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Menning Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Lífið Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Lífið Fleiri fréttir Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Sjá meira