Amerísku risarnir hittast 8. apríl 2010 06:00 Steve Carell og Tina Fey eru risar í bandarísku gríni. Carell hefur verið lengi að en Fey er nýjasta fyrirbærið í bandarískum grínbransa, hún skrifar handrit, leikur og framleiðir bíómyndir eins og að drekka vatn. Kvikmyndin Date Night skartar þeim tveim í aðalhlutverkum.
Tina Fey og Steve Carell eru án nokkurs vafa í fremstu víglínu bandarísks gríns. Carell er hin ameríska útgáfa af Ricky Gervais en Fey er einstök í bandarískum húmor. Þeir eru margir sem bíða spenntir eftir kvikmyndinni Date Night með þeim Steve Carell og Tinu Fey í aðalhlutverkum. Carell hefur farið á kostum í bandarísku útgáfunni af Office og Fey verið óstjórnlega fyndin í 30 Rock. Saman ættu þau því að vera óstöðvandi í að kitla hláturtaugar kvikmyndahúsagesta. Date Night segir frá Foster-hjónunum sem lifa fremur rólegu og hæglátu lífi. Kvöld eitt ákveða þau þó að gera sér dagamun og panta sér borð á fínum veitingastað. Hjónakornin missa hins vegar af borðinu sínu en ákveða hins vegar að hrifsa borð af öðru pari sem ekki er mætt. Sú ákvörðun á eftir að reynast þeim dýrkeypt því það par hefur sitthvað óhreint í pokahorninu. Meðal annarra leikara í myndinni má nefna Mark Wahlberg, Milu Kunis, Mark Ruffalo og James Franco. Kannski er óþarfi að eyða of mörgum orðum í feril Steves Carell. Hann sló eftirminnilega í gegn á heimsvísu í kvikmyndinnni 40 year old Virgin en eins og svo margir aðrir bandarískir grínistar er Carell fastagestur hjá Saturday Night Live-þáttunum. Kvikmyndaferill Carells hefur verið nokkuð skrykkjóttur en það hefur ekki komið að sök; Office hefur haldið honum á floti. Tina Fey er hálfgert fyrirbæri í bandarískum grínbransa. Í raun og veru er Fey einstök því grínbransinn hefur verið heimur karla, vinsælar grínmyndir hafa yfirleitt fjallað um heimska hvíta eða svarta karla sem gera sig að fíflum eða eitthvað þaðan af verra. Fey hefur í raun og veru breytt ásýnd bandarísk gríns og gefið konum aukið vægi í gríni. Auk þess að vera leikkona er Fey fær handritshöfundur, skrifar til að mynda handritið að flestum þáttum 30 Rock auk sketsanna fyrir Saturday Night Live. Þá á Fey kannski mestu sökina á því að Lindsay Lohan varð það sem hún er í dag því Fey skrifaði handritið að kvikmyndinni Mean Girls sem skaut vandræðagemsanum á forsíður slúðurblaðanna. Þótt Fey sé kannski þekktust fyrir leik sinn í 30 Rock hér á Íslandi þá hefur hún verið einn af prímusmótorum SNL undanfarin tíu ár. Bæði sem handritshöfundur en ekki síður sem leikkona. Hún var til að mynda á allra vörum þar vestra fyrir túlkun sín á Söruh Palin, varaforsetaefni Johns McCain, í síðustu forsetakosningum og stal eiginlega senunni. Sumir þættirnir þar sem Fey brá sér í líki Palin slógu áhorfsmet hjá SNL og því hefur jafnvel verið haldið fram að grínleikkonan hafi haft veruleg áhrif á niðurstöðu kosninganna. (Rétt að halda því til haga að gáfnafari Palin var haldið í lágmarki í þessum þáttum). Af næstu verkefnum Fey má nefna að hún talar inn á teiknimyndina Megamind ásamt Brad Pitt, Johan Hill, Will Ferrell og Jonah Hill. Þá skrifar hún handrit að nýrri mynd fyrir Sacha Baron Cohen og hyggst framleiða gamanmynd ásamt áðurnefndum Steve Carell. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ Lífið „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Lífið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd Lífið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Lífið Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Lífið Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Lífið Sambandi Cox og McDaid lokið Lífið Lofsyngja tónleika Laufeyjar í Kína Tónlist Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Lífið Fleiri fréttir Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Sjá meira