Ískaldir tónar og lélegir brandarar á Hróarskeldu 6. júlí 2010 06:00 Rokkararnir gerðu góða hluti á Hróarskelduhátíðinni í Danmörku um síðustu helgi.
Hljómsveitirnar Sólstafir og FM Belfast spiluðu á Hróarskelduhátíðinni í Danmörku um síðustu helgi. Sólstafir fá góða dóma fyrir frammistöðu sína en misjafnar skoðanir eru um spilamennsku FM Belfast. „Þetta gekk eins og í lygasögu. Það var allt fullkomið. Eina Spinal Tab-augnablikið var þegar bolirnir sem við vorum búnir að gera og komu frá Þýskalandi týndust,“ segir Aðalbjörn Tryggvason, söngvari og gítarleikari þungarokkssveitarinnar Sólstafir. Sveitin spilaði á Hróarskelduhátíðinni í Danmörku um helgina ásamt elektró-poppsveitinni FM Belfast. Einnig komu þar fram þekktar sveitir á borð við Muse, Gorillaz og Them Crooked Vultures. „Við fengum frábærar móttökur hjá tónleikahöldurunum og þetta var allt til fyrirmyndar. Það var fjölskylduhátíð hjá okkur. Við vorum með skyldmenni og vini í pikknikk rétt bak við sviðið. Það var alveg æðislegt,“ segir Aðalbjörn. Sólstafir spiluðu á Pavilion-sviðinu á fimmtudagskvöldinu fyrir fullu tjaldi, eða um tvö þúsund manns, í um sjötíu mínútur og gengu tónleikarnir mjög vel. Í dómi sem birtist á dönsku tónlistarsíðunni Diskant.dk fær sveitin 8 af 10 mögulegum í einkunn, sem er ekki amalegt. „Þrátt fyrir að hljómsveitin hafi spilað ískalda tónlist var helvíti heitt á litla sviðinu,“ segir í dómnum. „Það var engin kreppa eða þunglyndi sem lá yfir hljómsveitinni eða áhorfendunum því bandið var í fínu formi og áhorfendurnir fylltust af krafti sem varð til þess að tjaldið lyftist nokkrum sinnum meðan á mestu látunum stóð.“ FM Belfast spilaði á sama sviði á laugardagskvöldinu en fékk misjafna dóma hjá dönsku pressunni. „Þegar hljómsveitin er upp á sitt besta er tónlistin heillandi á sinn barnalega hátt en þegar hún er hvað verst er hún nálægt því að hljóma eins og leiðindagaul. Því miður féll frammistaðan á laugardeginum oft í síðarnefnda flokkinn,“ sagði í dómi Metroexpress.dk. „Til þess að halda uppi orðspori sínu sem hress og skemmtileg tónleikasveit reyndi hljómsveitin að fá áhorfendur til að taka þátt í tónleikunum en gat því miður ekki hulið grundvallarvandamálið: FM Belfast reyndi að ná til allra og féll þess vegna í þá gryfju að segja lélega brandara og spila kjánaleg lög eftir aðra.“ Gagnrýnandi síðunnar Bandbace.dk var jákvæðari í garð hljómsveitarinnar. „FM Belfast spilar vel heppnaða elektróníska tónlist. Taktarnir eru negldir niður af millimetra nákvæmni og þú færð litlu, grípandi laglínurnar á heilann hvort sem þér líkar betur eða verr.“ freyr@frettabladid.is
Mest lesið Útför Gunnars Þórðarsonar Lífið Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Lífið Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Lífið Jóhanna Guðrún ólétt Lífið Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Lífið Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Lífið Heiður að endurvekja falda perlu Palla Tónlist Frægustu mágar landsins Lífið Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð Lífið Eurovision haldið í Burgas í Búlgaríu Tónlist Fleiri fréttir Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Perez Hilton þarf að fara í aðgerð eftir sjálfsskaða í beinu streymi á TikTok Þegar Davíð hafði afskipti af hjónabandi Ólafs og Dorritar Fræg feðgin snæddu kvöldmat á Horninu Sjá meira