The Hurt Locker sigursæl 23. febrúar 2010 04:00 Carey Mulligan og Colin Firth voru valdir bestu aðalleikararnir á Bafta-verðlaunahátíðinni sem var haldin um helgina.nordicphotos/getty
Kvikmyndin The Hurt Locker kom, sá og sigraði á bresku Bafta-verðlaunahátíðinni sem var haldin í London um helgina. Myndin hlaut sex verðlaun og skaut í leiðinni stórvirkinu Avatar ref fyrir rass. The Hurt Locker, sem fjallar um sprengjuleitarmenn í Írak, var valin besta myndin, auk þess sem Kathryn Bigelow var kjörin besti leikstjórinn. Þetta er í fyrsta sinn sem kona vinnur þessi verðlaun. Bar hún þar sigurorð af fyrrverandi eiginmanni sínum, James Cameron, sem var tilnefndur fyrir stórmyndina Avatar. Sú mynd var tilnefnd til átta Bafta-verðlauna eins og The Hurt Locker en hlaut aðeins tvenn. Forvitnilegt verður að fylgjast með viðureign þessa mynda á Óskarsverðlaununum 7. mars en þær fengu báðar níu tilnefningar. Bretarnir Carey Mulligan og Colin Firth voru kjörnir bestu leikararnir í kvenna- og karlaflokki. Mulligan fyrir bresku myndina An Education og Firth fyrir túlkun sína á samkynhneigðum háskólaprófessor í A Single Men, fyrsta leikstjórnarverkefni tískuhönnuðarins Toms Ford. „Það sem Tom Ford veit ekki er að í pósthólfinu mínu er tölvupóstur þar sem ég skrifa honum og segi að ég geti engan veginn leikið í þessari mynd. Ég ætlaði að fara að senda hann þegar náungi kom heim til að laga ísskápinn. Ég veit greinilega ekki hvað hentar mér best þannig að mig langar til að þakka ísskáps-náunganum,“ sagði Firth. Mulligan sigraði leikkonur á borð við Meryl Streep og Audrey Tatou í sínum flokki. „Ég var hérna fyrir ári síðan og mér datt aldrei í hug að þetta ætti eftir að gerast. Ég vildi óska að ég gæti haldið ræðu eins og Colin Firth um ísskápa en ég get það ekki,“ sagði hún. Christoph Waltz fékk enn ein verðlaunin fyrir aukahlutverk sitt sem gyðingaveiðarinn í Inglourious Basterds og Mo"Nique sigraði í kvennaflokki sem grimmlynd móðir í Precious. Fish Tank var kjörin besta breska myndin og Kristen Stewart úr Twiligh-myndunum varð fyrir valinu sem efnilegasta ungstirnið. Þá var Up valin besta teiknimyndin og franska glæpamyndin A Prophet besta erlenda myndin. Í lok athafnarinnar hlaut Vanessa Redgrave, sem er 73 ára, heiðursverðlaun Bafta úr höndum Umu Thurman og Williams Bretaprins. kathryn bigelow Bigelow er fyrsta konan til að fá Bafta sem besti leikstjórinn.
Mest lesið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Lífið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum Lífið Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Lífið Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Lífið Allir og amma þeirra í bókaklúbb Lífið Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Lífið Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Lífið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Fleiri fréttir Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Sjá meira