Lokaþáttur Steinda bannaður innan 16 - syngur dúett með Röggu Gísla 18. júní 2010 16:30 Steindinn okkar hefur slegið í gegn hjá þjóðinni.
Lokaþáttur Steindans okkar verður sýndur á Stöð 2 í kvöld. Steindi, Bent og hjálparkokkurinn Diddi Fel voru í óðaönn að taka upp lokaatriðið um tíuleytið í gærkvöldi í fréttastúdíói Stöðvar 2. Steindi hljóp þar um ber að ofan fyrir framan "greenscreen" fréttastofunnar. Asinn á drengjunum var ansi mikill enda áttu þeir eftir að taka upp atriðið og klippa þáttinn áður en hann verður sendur út í kvöld. Um er að ræða tónlistaratriði þar sem Steindinn syngur dúett með Ragnhildi Gísladóttur sem söng eitt sinn með Stuðmönnum og Grýlunum. Kannski er annar smellur á leiðinni frá Steinda, en lagið Geðveikt fínn gaur, sem hann syngur með Ásgeiri Orra Ásgeirssyni úr Grínlandsþáttunum, nýtur gríðarlegra vinsælda um þessar mundir. Þátturinn verður stranglega bannaður börnum og með rauðu merki í horninu sem þýðir að börn undir 16 ára þurfa sérstakt leyfi frá foreldrum til þess að fá að horfa. Þátturinn ku vera afar grófur og innihalda atriði sem þeir félagar Steindi og Bent, sem eru á bak við þáttinn, fengu ekki að sýna í upphafi. Steindinn okkar hefur hins vegar slegið rækilega í gegn og þeir þrjóskuðust í toppunum á Stöð 2 til að fá að sýna atriðin. Steindi hefur fengið ýmis fræg nöfn til að fara með hlutverk í þáttunum. Eftirminnilegt var þegar Páll Óskar og Jói Fel slógust og ástríða Sigga Hall var einn af hápunktum þáttarins. Þekktu andlitin verða á sínum stað í grófa þættinum; Sigmar Guðmundsson úr Kastljósinu er væntanlegur í kvöld ásamt útvarpsstjóranum Einari Bárðarsyni. - afb
Tengdar fréttir Steindinn okkar bannaður innan 12 ára Gamanþátturinn Steindinn okkar hefur göngu sína á Stöð 2 í kvöld. Þátturinn er á dagskrá eftir klukkan níu og er bannaður innan tólf ára. 30. apríl 2010 14:53 Hausinn á Jóa Fel sprakk eftir bardagann Hnífabardagi Jóa Fel og Páls Óskars var hluti af sprenghlægilegu myndbandi sem nú er komið á Netið. Bransasögur heitir rapplagið þar sem Steindi Jr. segir vinum sínum skrautlegar sögur við gerð þáttanna Steindinn okkar. 16. maí 2010 16:30 Nýtt myndband Steinda Jr. endar í blóðbaði Aðdáendur Steindans okkar bíða í ofvæni eftir að hann frumsýni ný tónlistarmyndbönd á Stöð 2 á föstudögum. Í síðasta þætti kynnti hann til leiks lagið Geðveikt fínn gaur. 31. maí 2010 15:43 Siggi Hall: Á ég að grilla kellinguna þína eða hvað? Nýjasta tónlistarmyndband Steinda Jr. tekur óvænta stefnu þegar Siggi Hall er kynntur til leiks í Þjóðleikhúskjallaranum sem bandbrjálaður og morðóður kokkur. 8. júní 2010 14:00 Mest lesið Yngsti gusumeistari landsins Lífið Emma Watson svipt ökuleyfinu Lífið Íslensk hátíska úr fiskileðri slær í gegn í Vogue Tíska og hönnun Væri teiknimyndapersóna í fullkomnum heimi Tíska og hönnun „Þetta er miklu stærra en fólk gerir sér grein fyrir“ Lífið „Þú stýrir þínum rokkstjörnulífsstíl“ Lífið Sögufrægur gítar Stones fannst hálfri öld eftir að honum var stolið Lífið Hvað er Labubu og hvers vegna eru allir að missa sig yfir því? Tíska og hönnun Sjarmerandi raðhús í 105 Lífið „Kókaín hefur tekið mig aftur og aftur til helvítis“ Lífið Fleiri fréttir Emma Watson svipt ökuleyfinu Yngsti gusumeistari landsins Sjarmerandi raðhús í 105 Sögufrægur gítar Stones fannst hálfri öld eftir að honum var stolið „Þetta er miklu stærra en fólk gerir sér grein fyrir“ „Óljósir, fallegir og stundum óþægilegir hlutir“ Óútgefinni tónlist Beyoncé stolið úr bíl danshöfundar „Þú stýrir þínum rokkstjörnulífsstíl“ „Yndislegir vinir gáfu okkur saman í plötubúð“ Sögulegt sveitaball í hundrað ár Boxari selur íbúð með heitum potti og Esju útsýni Telur að 511 kílómetra hlaupið styrki hlauparann „Kókaín hefur tekið mig aftur og aftur til helvítis“ Ómissandi gönguleiðir sem þú verður að prófa Stjörnulífið: „Engar áhyggjur við erum ekki skilin“ Riddarar kærleikans í hringferð um landið Endaði á geðdeild eftir notkun MDMA í sálfræðimeðferð Reykvíkingur ársins tileinkar samstarfsfólki útnefninguna Nágrannar kveðja sjónvarpsskjáinn „Það verður erfitt að trúa því að lífið muni einhvern tímann leiða eitthvað gott af sér” Krakkatían: Narnía, krónprins og sundlaugar Klay Thompson og Megan Thee Stallion nýtt par Börnin læra að sauma út, baka og elda í Hússtjórnarskólanum „Auðvitað væri ég til í að ná enn lengra“ Fréttatía vikunnar: Kjarnorkukafbátur, málþóf og magapína Hneykslast á freðnum Bieber dansa við Sexyy Redd og kyssa hana á ennið Ætlar að ná styrk í fingurna til að geta greitt dótturinni Ragga Holm og Elma trúlofaðar Eftirlætis náttúruperlur Ásu Steinars Bieber gefur út óvænta plötu Sjá meira
Steindinn okkar bannaður innan 12 ára Gamanþátturinn Steindinn okkar hefur göngu sína á Stöð 2 í kvöld. Þátturinn er á dagskrá eftir klukkan níu og er bannaður innan tólf ára. 30. apríl 2010 14:53
Hausinn á Jóa Fel sprakk eftir bardagann Hnífabardagi Jóa Fel og Páls Óskars var hluti af sprenghlægilegu myndbandi sem nú er komið á Netið. Bransasögur heitir rapplagið þar sem Steindi Jr. segir vinum sínum skrautlegar sögur við gerð þáttanna Steindinn okkar. 16. maí 2010 16:30
Nýtt myndband Steinda Jr. endar í blóðbaði Aðdáendur Steindans okkar bíða í ofvæni eftir að hann frumsýni ný tónlistarmyndbönd á Stöð 2 á föstudögum. Í síðasta þætti kynnti hann til leiks lagið Geðveikt fínn gaur. 31. maí 2010 15:43
Siggi Hall: Á ég að grilla kellinguna þína eða hvað? Nýjasta tónlistarmyndband Steinda Jr. tekur óvænta stefnu þegar Siggi Hall er kynntur til leiks í Þjóðleikhúskjallaranum sem bandbrjálaður og morðóður kokkur. 8. júní 2010 14:00