Löng og kaflaskipt Sálarlög 28. október 2010 06:00 Ný plata frá Sálinni komin út Jens Hansson er hljómborðs- og saxófónleikari Sálarinnar hans Jóns míns. fréttablaðið/vilhelm
Fjórtánda plata Sálarinnar hans Jóns míns, Upp og niður stigann, er komin út. Platan var unnin að töluverðu leyti í samvinnu við Stórsveit Reykjavíkur með Samúel J. Samúelsson í fararbroddi. „Samúel er algjör ljúflingur og hrikalega klár. Hann sér algjörlega um blásaraútsetningar. Við létum hann algjörlega um það,“ segir Jens Hansson, hljómborðs- og saxófónleikari Sálarinnar. Samúel hefur áður unnið með Sálinni en í þetta sinn voru útsetningarnar stærri en áður enda heil stórsveit með Sálarmönnum í liði. „Þetta er öðruvísi heldur en við höfum verið að gera. Þetta eru mjög löng lög, mikið af köflum og það er svolítill „seventís“-bragur á sumu,“ útskýrir Jens, sem spilaði aðallega á rafsaxófón á plötunni. „Það eru aðrir saxófónleikarar sem spila í Stórsveitinni og ég var ekkert að trufla þá. Þeir sjá um þetta, enda fagmenn á hverju strái.“ Ellefu lög eru á nýju plötunni, níu eftir Guðmund Jónsson og tvö eftir Jens. „Þetta er standard kvótinn,“ segir Jens í léttum dúr. Þrettánda nóvember blæs Sálin ásamt Stórsveitinni til tónleika í Laugardalshöll í tilefni plötunnar. Dagskrá tónleikanna verður tvískipt. Leikin verða jöfnum höndum lög af plötunni og þekkt lög frá ferli Sálarinnar sem verða skreytt með kraftmiklum lúðrablæstri. - fb
Mest lesið Svona verður röð laganna á laugardaginn Lífið Einhleypir þokkasveinar Lífið „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikið sorg“ Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Þessi tíu lög komust í úrslit Lífið Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Lífið Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Lífið VÆB bræður á forsíðu BBC Lífið Pub Quiz hvar sem er, hvenær sem er! Lífið samstarf Fleiri fréttir Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Einhleypir þokkasveinar Svona verður röð laganna á laugardaginn Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Þessi tíu lög komust í úrslit VÆB bræður á forsíðu BBC „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikil sorg“ Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sjá meira