Biggi í Maus skrifar poppsögu Páls Óskars 8. maí 2010 10:00 Biggi í Maus vinnur að poppbók um Pál Óskar, einn allra vinsælasta tónlistarmann Íslandssögunnar. Palli segir bókina vera fulla af djúsí sögum ásamt því að virka sem kennslubók um bransann fyrir áhugamenn og tónlistarfólk. Mynd/GVA „
Þetta er farið að líta mjög skemmtilega út og gæti orðið ágætiskennslubók fyrir poppara og áhugafólk um tónlist," segir poppkóngurinn Páll Óskar Hjálmtýsson. Páll Óskar hefur ráðið Birgi Örn Steinarsson, Bigga í Maus, til að skrifa poppsögu sína. Í bókinni verður farið í sögurnar á bakvið plöturnar og lögin. Þá verða tæmandi listar yfir plötur, smáskífur, tónleika og flest annað sem tengist tónlistarferli Páls, en hann gaf út fyrstu sólóplötuna, Seif, árið 1993. DV greindi frá því á dögunum að Biggi væri að skrifa ævisögu Páls Óskars, en því vísar hann til föðurhúsanna. „Ég er ekki að fara að skrifa ævisögu mína - allavega ekki núna," segir Páll Óskar ákveðinn. „Ég vil skrifa ævisögu mína sjálfur, eftir sextugt, eða sjötugt. Ég veit ekki hvaða lærdóm á að draga af ævi minni núna, af því að hún er ekki liðin - ég er enn þá á fullu að lifa hana. Það er allt of snemmt að skrifa ævisögu núna." Páll Óskar segir að bókin varpi ljósi á hvað gekk á þegar popptónlist var unnin við íslenskar aðstæður, áður en netsala tók við af geisladisknum. „Það er líf í bókinni. Hún er skrautleg og það er fullt af djúsí poppsögum sem eru þegar byrjaðar að poppa upp," segir hann. „Við erum að reyna að gera bókina eins ýtarlega og hægt er." Þú hefur gert plötur á bæði réttan og rangan hátt… „Já, það er það sem fólk lærir vonandi af - bæði af því sem gekk vel hjá mér og því sem floppaði." Þessi tegund bóka er vel þekkt og sjálfur á Páll Óskar svipaðar bækur um David Bowie, Burt Bacharach og Bítlana. Óvíst er hvenær bókin kemur út, en Páll Óskar segir að kapp verði lagt á að klára bókina í tæka tíð svo hægt verði að gefa hana út í ár. Hann leggur þó áherslu á að hún komi ekki út fyrr en hann finnur að hún sé 100 prósent tilbúin. „Við þurfum að vera ógeðslega duglegir ef við ætlum að gefa út í ár. Það er möguleiki, en það fer allt eftir hvernig bókin vinnst," segir Páll. „En ég vil ekki skila af mér hálfbakaðri köku. Þá er betra að hinkra aðeins." atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Menning Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Lífið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Lífið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Lífið Fleiri fréttir Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Sjá meira