Vildu frystar milljónir til baka vegna áfellisdóms 21. maí 2010 19:42 Hæstiréttur Íslands var sammála úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur. Karl Steingrímsson og sonur vildu meina að bréf ríkislögreglustjóra hefði verið gildishlaðið.
Eigendur félagsins Vindasúlna ehf., sem var í eigu feðganna Arons og Karls Steingrímssonar sem gjarnan er kenndur við Pelsinn, vildu hnekkja úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur sem heimilaði embætti ríkislögreglustjóra að leggja hald á tæplega 93 milljónir vegna meints fjársvikamáls varðandi nýtt húsnæði kínverska sendiráðsins. Hæstiréttur staðfesti úrskurð héraðsdóms í dag. Feðgarnir vildu meina að haldlagning fjármunanna væri ógilt á þeim grunni að ríkislögreglustjóri hafi brotið hlutlægnireglu sakamálalaga með orðalagi sínu í bréfi til MP banka, þar sem féð var geymt. Í upphafsorðum bréfsins sagði að efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra væri að rannsaka stórfelld fjársvik í tengslum við sóknaraðila. Í setninguna vantaði orðin „meint" eða „hugsanleg" fjársvik að mati feðganna. Málið snýst um hús, sem er við Skúlagötu 51, og var í eigu Vindasúlna ehf, sem er í eigu þeirra feðga. 2. desember var gert tilboð í húsið. Húsið var aftur á móti flutt út úr Vindasúlum þann 11. desember og inn í eignarhaldsfélagið 2007. Þremur dögum síðar gerði sami aðili annað tilboð í húsið upp á 575 milljónir króna. Þann 16. desember féllust bankarnir á tilboðið en degi síðar seldu eigendurnir húsið til kínverska sendiráðsins fyrir 870 milljónir króna. Arion banki, Glitnir og Íslandsbanki, töldu að með þessum gjörningi hafi feðgarnir haft af þeim allt að 300 milljónir króna og fóru fram á lögreglurannsókn. Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra framkvæmdi í kjölfarið húsleitir á þremur stöðum; starfsstöð feðganna og hjá tveimur öðrum mönnum sem sáu um viðskiptin. Málið er enn í rannsókn.
Mest lesið Strandveiðisjómaður lést Innlent Allkröpp lægð á leiðinni til landsins Veður Biður Höllu afsökunar á fréttum af meintum lífvörðum Innlent Ældi í rútunni og réðst svo á bílstjórann Innlent Samstöðinni verði mögulega lokað í kvöld: Vilja fá lögbann á boðaðan aðalfund Innlent Tugir missa vinnuna í sumar Innlent Unglingsstúlka lést þegar hestur dró hana eftir jörðinni Erlent Snurða hljóp á þráðinn í nótt Innlent Fötlun þýði ekki að börn njóti þess minna að róla og leika sér Innlent Hefur í hótunum við New York vegna „kommúnistans“ Mamdani Erlent Fleiri fréttir Líf í biðstöðu og hitafundur sósíalista Strandveiðisjómaður lést Deila um Suðurnesjalínu 2 fer beint í Hæstarétt Áslaug Arna farin í frí en enginn tekinn við Sviptur prófinu eftir að hafa ekið á 185 Ældi í rútunni og réðst svo á bílstjórann Sá sem réðst á Ingunni áfrýjar til hæstaréttar Bein útsending: Rektorsskipti í Háskóla Íslands Snurða hljóp á þráðinn í nótt Samstöðinni verði mögulega lokað í kvöld: Vilja fá lögbann á boðaðan aðalfund Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði Reynt að ná saman um þinglok og hart deilt um Vorstjörnuna Máttu ekki eyða gögnum fyrr en málum væri lokið á öllum dómstigum Bjórpása í Víkinni og lögreglan í heimsókn í Garðabæ Skoða ekki hvort maður hafi mátt binda barn niður og kitla Biður Höllu afsökunar á fréttum af meintum lífvörðum Svörin líklega að finna á Íslandi: Vonlítill um að Jón Þröstur sé á lífi Skjálfti upp á þrjá í Kötlu Fundar með þingflokksformönnum Fötlun þýði ekki að börn njóti þess minna að róla og leika sér Borgin fékk frest til að svara Umboðsmanni um fundargerðarbreytingar Ekkert samkomulag í höfn enn um þinglok Hringsund um Ísland skapi verðmæta þekkingu Óákveðin hvort hún fari aftur fram fyrir Sósíalista: „Mér finnst þetta bara orðið bull“ Tugir missa vinnuna í sumar Segir ráðherra sjálfum í lófa lagið að breyta leikreglum svo ágóðinn rati vestur Segir gömlu samræmdu prófin ekki hafa mælt það sem þurfti Múmínlundurinn verður Ævintýraskógur á meðan leyst er úr höfundarrétti Störf á landsbyggðinni, skortur á sérfræðiþekkingu kennara og óperugala Sektaður fyrir að vera á 101 kílómetra hraða í 101 Sjá meira