Jökullinn stal yfirleitt senunni 11. mars 2010 05:00 Halldór Lárusson við settið Hefur starfrækt trommunördasíðuna trommari.is í rúmlega ár.
Halldór Lárusson hefur haldið úti vefsíðunni trommari.is í meira en eitt ár. Nú hefur umfjöllun um Gunnar Jökul Hákonarson dregið dilk á eftir sér og stefnt er á minningartónleika í haust. „Tilgangurinn með síðunni var að halda úti trommunördasíðu þar sem trommarar landsins gætu komið saman og rifist yfir því hvaða kjuðar væru bestir og svoleiðis,“ segir Halldór. „Trommarar eru greinilega miklir nördar því viðtökurnar hafa verið betri en ég bjóst við. Það eru á fimmta hundrað manns innskráðir og margir af þeim eru mjög virkir á síðunni.“ Halldór er að sjálfsögðu trommari sjálfur, spilaði með Spilafíflum, Með nöktum, MX-81 og Júpiters áður en hann flutti til Hollands þar sem hann spilaði árum saman. Hann býr nú í Grindavík, kennir í þremur tónlistarskólum og leikur með gömlum félögum úr Júpiters í hljómsveitinni Lemúrar. Eitt af því sem Halldór býður upp á á síðunni er „Trommari vikunnar“. Nýlega var Gunnar Jökull Hákonarson einn slíkur, en „Jökullinn“ er sannkölluð goðsögn í íslenskri poppsögu. Hann var trommari Trúbrots og spilaði með beat-combóinu The Syn í London á 7. áratugnum. Byrjaði þar aðeins 16 ára gamall. „Ég vildi afla sem mestra upplýsinga um Jökulinn og það vægast sagt vatt upp á sig,“ segir Halldór. „Greinin sem er á síðunni núna er bara forsmekkurinn, því það er svo mikið búið að koma í ljós í viðbót. Það kemur önnur grein seinna. Ég talaði við forsprakka The Syn, söngvarann Stephen Nardelli, fann hann bara í ensku símaskránni. Við kjöftuðum örugglega saman í klukkutíma og það barst í tal að halda minningartónleika um Gunnar Jökul og þá vildi hann óður og uppvægur koma hingað með The Syn. Þeir byrjuðu að spila saman aftur árið 2003. Það á eftir að koma í ljós hvort hann stendur við stóru orðin, en það verða líklega haldnir minningatónleikar í september hvort sem þeir koma eða ekki.“ Bassaleikarinn Chris Squire og gítarleikarinn Pete Banks voru meðlimir í The Syn, en bandið hætti 1967 og þeir stofnuðu hljómsveitina Yes ári síðar. Þeir reyndu mikið að fá Gunnar Jökul aftur út, en hann var búinn að gefast upp á harkinu í útlöndum og missti þar með af heimsfrægðinni því Yes átti eftir að rísa í hæstu hæðir 1969. Bill Bruford trommaði í staðinn með Yes. „Það hefur aldrei komið fram áður að þegar Bill hætti í Yes árið 1972 þá reyndu þeir að fá Jökulinn í bandið en náðu bara ekki sambandi við hann,“ segir Halldór. Hann segir að margt sem Nardelli hafi sagt sér um Gunnar Jökul hafi komið á óvart. „Gunnar, Keith Moon úr The Who og Mitch Michell úr The Jimi Hendrix Experience voru til að mynda miklir félagar. The Syn og The Who túruðu oft saman og héldu djamm-sessjónir og þá stal Gunnar Jökull yfirleitt senunni.“ Einn af þeim sem hreifst af Jöklinum var Phil Collins. „Phil skrifaði í bæklinginn þegar The Syn safndiskur var gefinn út fyrir nokkrum árum og það kom upp sú hugmynd að fá hann til að koma til landsins í tilefni af minningartónleikunum. Hann myndi þó ekki tromma því hann fór í bakaðgerð fyrir nokkrum árum og hætti að geta trommað eftir það.“ Trommuleikaraferill Gunnars Jökuls rann út í sandinn þegar hann var aðeins 24 ára og verður saga hans að teljast ein sú harmrænasta í íslenskri poppsögu. Jökullinn lést fyrir aldur fram úr alnæmi árið 2001, 52 ára að aldri. Halldór trommari vonast til að af þessum löngu tímabæru minningartónleikum geti orðið í september. drgunni@frettabladid.is
Mest lesið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Menning Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Lífið Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Lífið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Lífið Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Gagnrýni Fleiri fréttir Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Sjá meira