Dekrað við Mezzofortemenn á Kastrup 25. mars 2010 07:00 Þrír meðlimir Mezzoforte fengu góðar móttökur á Kastrup-flugvelli í Kaupmannahöfn. „
Án þess að við séum einhver lúxusdýr var þægilegt að láta fara vel um sig í smástund,“ segir Eyþór Gunnarsson, hljómborðsleikari Mezzoforte. Eyþór og félagar hans, Óskar Guðjónsson og Jóhann Ásmundsson, duttu í lukkupottinn á Kastrup-flugvelli í Kaupmannahöfn á leið sinni til Ungverjalands þar sem þeir héldu tónleika síðasta föstudag. Sænskur starfsmaður á flugvellinum varð uppnuminn er hann sá þá félaga og hikaði ekki við að koma þeim fyrir á Business Class þeim að kostnaðarlausu. „Hann var á horfa á DVD-diskinn með okkur um morguninn. Kollegi hans sagðist reyndar eiga DVD-disk með okkur líka,“ segir Eyþór og brosir að þessu öllu saman. „Við vorum ekkert að falast eftir þessu en þeir færðu okkur upp alveg óumbeðnir. Þetta voru þægilegri sæti en þetta var svo sem bara einn og hálfur tími þetta flug.“ Í þakkarskyni fengu aðdáendurnir eiginhandaráritanir frá Mezzoforte-þremenningunum á brottfararspjöldin þeirra. Tónleikarnir í Ungverjalandi gengu mjög vel þar sem Mezzoforte spilaði fyrir troðfullu 750 manna húsi. Næst spilar sveitin í Berlín á mánudaginn og því næst er ferðinni heitið til Suður-Afríku. Þar spilar sveitin á tvennum tónleikum á stórri djasshátíð, eins og Fréttablaðið hefur áður greint frá. Meðfram tónleikahaldi er Mezzoforte að undirbúa sína næstu plötu sem er væntanleg í haust og stóðu upptökur yfir í Köln í Þýskalandi fyrir skömmu með þarlendum gítarleikara. Tónleikar í Vladivostok í Rússlandi hafa meðal annars verið bókaðir til að fylgja henni eftir. Eyþór viðurkennir að uppákoman á Kastrup flugvelli hafi verið óvænt ánægja. Hann segir þá ekki lenda oft í því núorðið að aðdáendur spjalli við þá á erlendum flugvöllum. „En við eigum mjög trygga aðdáendur víða um heim. Það ætlar einn að koma til Berlínar frá Englandi og einhverjir ætla að keyra 1.100 kílómetra frá Ítalíu. Við eigum aðdáendur af ýmsu tagi sem eru tilbúnir til að leggja ýmislegt á sig.“- fb
Tengdar fréttir Skjaldborg haldin í fjórða sinn Hvítasunnuhelgina 21.–24. maí verður Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildarmynda, haldin í fjórða sinn á Patreksfirði. Auk þess að frumsýna nýjar íslenskar heimildarmyndir er hátíðinni ætlað að vera tækifæri fyrir kvikmyndagerðarfólk og áhugamenn um heimildarmyndir til að koma saman. Í lok hátíðarinnar verður besta heimildarmyndin á Skjaldborg 2010 valin af áhorfendum. 25. mars 2010 06:00 Mest lesið Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Stiklusúpa: Sturlað leikjahaust og vetur í vændum Leikjavísir Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Lífið Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Bíó og sjónvarp Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Vinsælasta ABBA-sýning heims í Hörpu og Hofi Lífið samstarf Fleiri fréttir Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Sjá meira
Skjaldborg haldin í fjórða sinn Hvítasunnuhelgina 21.–24. maí verður Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildarmynda, haldin í fjórða sinn á Patreksfirði. Auk þess að frumsýna nýjar íslenskar heimildarmyndir er hátíðinni ætlað að vera tækifæri fyrir kvikmyndagerðarfólk og áhugamenn um heimildarmyndir til að koma saman. Í lok hátíðarinnar verður besta heimildarmyndin á Skjaldborg 2010 valin af áhorfendum. 25. mars 2010 06:00