Fyrsti titill listaspíranna í KF Mjöðm kominn í höfn 24. apríl 2010 10:00 Utandeildarliðið KF Mjöðm sigraði á Vormóti KF Mjaðmar sem var haldið fyrir skömmu. Georg Kára Hilmarssyni, liðsmanni Sprengjuhallarinnar og KF Mjaðmar, hefur verið líkt við N´Gog, framherja Liverpool. Anthony Karl Gregory fyrrverandi framherji Vals spilaði einn leik með KF Mjöðm. „
Við erum að vonast til að þetta verði fyrsti titillinn af þremur í sumar, en maður veit aldrei,“ segir plötusnúðurinn Margeir Ingólfsson úr knattspyrnuliðinu KF Mjöðm. Liðið, sem er skipað fjölda listaspíra úr Reykjavík, sigraði nýverið á Vormóti KF Mjaðmar sem var ætlað að búa liðið undir utandeildina sem hefst í byrjun maí. Aðeins fjögur lið tóku þátt í Vormótinu, sem verður að teljast nokkuð óvenjulegt. „Þetta voru lið sem kannski voru ekki að berjast um titilinn í fyrra. Vinningslíkurnar áttu að vera ekki alltof óhagstæðar okkur en þetta voru hörkulið og það stóð mjög tæpt á því í þessum leikjum okkar,“ segir Margeir, sem stóð fyrir sínu í úrslitaleiknum. Hann jafnaði skömmu fyrir leikslok með viðstöðulausu bylmingsskoti eftir að Sindri Már Sigfússon úr hljómsveitinni Seabear skallaði boltann til hans. Vítaspyrnukeppni þurfti til að útkjá málin og þar var Mjöðmin sterkari aðilinn. „Þetta er búið að vera öskubuskuævintýri. Fyrsta árið gekk ekki neitt, annað árið voru það átta liða úrslitin og núna er kominn bikar í höfn, eða skjöldur,“ segir Margeir, sem gekk til liðs við Mjöðm fyrir einu ári. Annar nýr liðsmaður er Arnór Dan Arnarson, söngvari rokksveitarinnar Agent Fresco. Á meðal annarra meðlima eru Örvar Þóreyjarson Smárason úr múm, Högni Egilsson úr Hjaltalín, Einar Sonic úr Singapore Sling, listmálarinn Davíð Örn Halldórsson og leikararnir Sveinn Ólafur Gunnarsson og Jörundur Ragnarsson. Gamall framherji Vals, Anthony Karl Gregory, spilaði einnig með liðinu í einum leik í fyrrasumar. Aðalframherji liðins er aftur á móti Georg Kári Hilmarsson úr Sprengjuhöllinni, eða N"Gog eins og hann hefur verið nefndur eftir kollega sínum hjá Liverpool. Georg er ánægður með samlíkinguna enda sjálfur mikill púlari. „Þetta er nú aðallega nafnagrín en ég vona að ég haldi bolta aðeins betur en N"Gog,“ segir hann og hlær. „Ég er sjálfur meira með þetta týpíska breska markanef eins og Alan Shearer eða Robbie Fowler.“ Georg á óvenjulega sögu að baki í boltanum því hann hóf feril sinn hjá þýska atvinnumannaliðinu Hamborg. „Pabbi var í námi í tónlistarháskólanum í Hamborg og í gegnum skólaliðið sem ég var í var mér og öðrum strák boðið að vera með HSV. Ég get ekki sagt að þetta sé reynsla sem ég byggi á en það var ekki leiðinlegt að hefja ferilinn svona sterkt.“ Þess má geta að verðlaunaskjöldurinn sem KF Mjöðm vann á Vormótinu hangir uppi á skemmtistaðnum Karamba þar sem almenningur getur litið dýrðina augum. freyr@frettabladid.is Georg Kári Hilmarsson Liðsmanni Sprengjuhallarinnar og KF Mjaðmar hefur verið líkt við N´Gog.
Mest lesið Jólagjafir íslenskra vinnustaða Lífið Óléttan uppgötvaðist þremur dögum fyrir byrjun skólans Menning Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Lífið Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Lífið Cooper bað móðurina um hönd Hadid Lífið Laufey á landinu Lífið Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Lífið „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Lífið Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Lífið Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Lífið Fleiri fréttir Jólagjafir íslenskra vinnustaða Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Sjá meira