Túristar dansa við Jungle Drum í íslenskri náttúru 27. maí 2010 10:00 Hljómsveitinni Útidúr bregður fyrir í ímyndarauglýsingu fyrir Ísland þar sem hún leikur af sinni alkunnu snilld í veðurblíðunni á Austurvelli. Tökur á auglýsingunni, sem flokkast sem „Viral Video“, fóru fram í vikunni. fréttablaðið/GVA
Landkynningarátak ferðamálafyrirtækja og iðnaðarráðuneytisins vegna eldgossins er smám saman að taka á sig endanlega mynd. Vefsíðan inspiredbyiceland.com verður opnuð í dag og nú er verið að leggja lokahönd á óhefðbundna auglýsingu. Umrædd auglýsing skartar erlendum ferðamönnum í íslensku landslagi þar sem þeir tala um upplifun sína af íslenskri náttúru. Í sumum tilvikum hefur Ísland svo mikil áhrif að þeir stíga trylltan dans undir laginu Jungle Drum eftir Emilíönu Torrini. Reynir Lyngdal er leikstjóri myndbandsins, tökumaður er Bergsteinn Björgúlfsson en höfundurinn er Bragi Valdimar Skúlason hjá Fíton. Bragi segir auglýsinguna hugsaða til dreifingar á netinu, hún eigi eiginlega að dreifa sér sjálf og flokkast því sem svokallað „viral video". Reynir segir það hafa verið gríðarlega skemmtilegt að vinna auglýsinguna, þeir hafi farið hringinn í kringum landið og tekið viðtöl við túrista sem flestir hafi verið bergnumdir af náttúrufegurðinni. „Auglýsingin á fyrst og fremst að vera skemmtileg, þetta eru myndbrot af fallegum stöðum í höfuðborginni og svo úti um allt land," segir Reynir en stórsveitin Útidúr er meðal þeirra sem birtist í auglýsingunni, hún leikur af sinni alkunnu snilld á Austurvelli í blíðskaparveðri. Meðal annarra sem koma við sögu er kór Öldutúnsskóla en aðaláherslan er lögð á frásagnir ferðamannanna. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Menning Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Lífið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Lífið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Lífið Fleiri fréttir Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Sjá meira