Misskilningur á úrslitakvöldi 27. janúar 2010 05:30 Hljómsveitin Endless Dark spilar á úrslitakvöldi Global Battle of the Bands 27. apríl næstkomandi. mynd/birta rán björgvinsdóttir
Rokksveitin Endless Dark bar sigur úr býtum í hljómsveitakeppninni Global Battle of the Bands sem var haldin um síðustu helgi. Hljómsveitin verður fulltrúi Íslands í lokakeppninni sem verður haldin í London 27. apríl. Daníel Hrafn Sigurðsson, trommari sveitarinnar, segist ekki hafa búist við sigrinum, sérstaklega ekki eftir óvænta uppákomu á úrslitakvöldinu þegar sveitin spilaði þrjú lög í stað tveggja. „Það var misskilningur því við tókum þátt 2007 og fengum þá að taka tvö lög fyrst og þrjú í lokin. Við fengum síðan engan póst um fyrirkomulagið og héldum að það sama væri í gangi þarna,“ segir Daníel Hrafn, sem bjóst við því að sveitin yrði dæmd úr leik. „Við héldum að þetta væri búið en síðan töluðum við við þá sem stjórnuðu og þá var allt í góðu. Þá hélt maður í vonina.“ Endless Dark spilar svokallaða post-harðkjarnatónlist eða „screamo“ og meðal áhrifavalda hennar eru sveitir á borð við Underoath, Sleeping With Sirens og hin íslenska Shogun. Hljómsveitin er skipuð sex strákum á aldrinum 18 til 22 ára frá Ólafsvík og Grundarfirði og hefur starfað í núverandi mynd frá árinu 2008. Tónleikarnir í London verða þeir fyrstu hjá Endless Dark erlendis og er tilhlökkunin að sjálfsögðu mikil hjá þeim félögum. „Við getum ekki beðið,“ segir Daníel Hrafn en alls taka hljómsveitir frá yfir þrjátíu löndum þátt í lokakvöldinu. Sigurlaunin eru tíu þúsund dollarar, tíu daga tónleikaferð um Bretland og vikudvöl í hljóðveri í London. Daníel telur Endless Dark eiga alveg jafnmikla möguleika og hinar sveitirnar sem keppa. „Við hittum fimm Breta á úrslitakvöldinu sem sögðu að þeir ættu að taka vel í svona tónlist. Þannig að ég er vongóður.“- fb
Mest lesið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Lífið Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno Bíó og sjónvarp Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lífið Fleiri fréttir Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Sjá meira