Snorri spilar á South By Southwest 26. október 2010 06:00 Snorri spilar á tónlistarhátíðinni South By Southwest í Texas á næsta ári. „
Þetta verður mjög gaman,“ segir Snorri Helgason sem spilar á tónlistarhátíðinni South By Southwest í Texas næsta vor. Hljómsveitin Benni Hemm Hemm spilar einnig á hátíðinni, sem er mjög þekkt á meðal tónlistaráhugamanna. „Ég fór einu sinni með Sprengjuhöllinni og það var geðveikt gaman. Þetta er mjög skemmtileg hátíð og ég hlakka mikið til,“ segir Snorri og er sammála því að hátíðin gæti verið mikill stökkpallur fyrir hann sem sólótónlistarmann. „Þetta er fáránlega stór hátíð og maður þarf að vera heppinn til að það verði eitthvað úr þessu því það eru tuttugu þúsund bönd sem koma fram þarna.“ Snorri er nýbyrjaður á þriggja vikna tónleikaferðalagi um Kanada og var staddur í Nýfundnalandi þegar Fréttablaðið hafði samband við hann. Með honum í för er kanadíski tónlistarmaðurinn Lindy Vopnfjord. „Þetta er gaur sem ég kynntist þegar við vorum að spila með Sprengjuhöllinni í Toronto. Við gistum hjá honum þar. Þetta er svona „singer songwriter“ eins og ég og við erum að túra saman í Volvoinum hans,“ útskýrir Snorri. „Þetta er búið að vera alveg frábært. Það hefur verið góð stemning á tónleikunum okkar og það er líka allt fáránlega fallegt hérna í Nýfundnalandi.“ Fyrsta sólóplata Snorra, I"m Gonna Put My Name On Your Door, kemur út í Evrópu, Bandaríkjunum og í Kanada um miðjan nóvember. Hún kemur einnig út um svipað leyti heima á Íslandi á vinyl en hún kom út á geisladiski fyrir síðustu jól. Snorri flutti til London fyrr á árinu og er enn að koma sér þar fyrir. „Ég er búinn að spila þar einu sinni til tvisvar í viku og verið að kynnast borginni. Þetta er búið að vera geðveikt gaman en maður tekur einn mánuð í einu og reynir að láta þetta ganga upp.“ - fb
Mest lesið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Menning Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Lífið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Lífið Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Lífið Fleiri fréttir Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Sjá meira