Fótbolti

Vicente del Bosque verður áfram með Spán

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
AFP
Vicente del Bosque verður áfram þjálfari Spánverja eftir HM. Skiptir engu máli hvernig liðinu gengur á mótinu en það hefur leikið einn leik og tapað honum, fyrir Sviss. Evrópumeistararnir mæta Hondúras á mánudaginn. "Hvað sem gerist verður del Bosque áfram þjálfari liðsins. Það yrði ekkert stórslys ef við kæmumst ekki áfram," sagði Angel Villar Mar, forseti spænska knattspyrnusambandsins. Spánverjar hafa unnið 25 af 27 leikjum sínum undir stjórn þjálfarans.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×