Semja við eitt stærsta tónleikafyrirtæki Evrópu 6. júlí 2010 06:15 Hljómsveitin Endless Dark hefur gert samning við enska fyrirtækið X-Ray Touring. Tónleikar á Sonisphere-hátíðinni eru fyrirhugaðir.fréttablaðið/valli „
Við erum rosalega sáttir við þetta," segir Atli Sigursveinsson, gítarleikari rokksveitarinnar Endless Dark. Endless Dark hefur gert samning við enska fyrirtækið X-Ray Touring sem sér um að skipuleggja tónleika fyrir hinar ýmsu hljómsveitir. Samningurinn er mikilvægur fyrir Endless Dark því fyrirtækið er á meðal þeirra stærstu í Evrópu og er með stór nöfn á borð við Coldplay, Eminem, Green Day, Snow Patrol, Nick Cave og Queens of the Stone Age á sínum snærum. „Þetta er byrjunin. Við fórum á fund með manni sem heitir Steve Strange sem virðist vera einn af aðalgaurunum þarna," segir Atli. Endless Dark spilar svokallað post-harðkjarnarokk, eða screamo. Sveitin er skipuð sex strákum á aldrinum 18 til 22 ára frá Ólafsvík og Grundarfirði. Verkefnin eru þegar farin að hrannast upp hjá vestfirsku rokkurunum því Endless Dark hefur verið bókuð á Sonisphere-tónlistarhátíðina í Englandi 31. júlí. Þetta er mikil rokkhátíð, enda stíga þar á svið í ár Iron Maiden, Rammstein, Mötley Crüe, Placebo og fleiri kunnar sveitir. „Þetta er geðveikt. Þarna verða líka önnur bönd sem ekki allir þekkja sem eru átrúnaðargoð hjá manni," segir Atli sem hlakkar mikið til að spreyta sig. „Núna eru bara æfingar á fullu. Þetta má ekki klúðrast. Þetta gæti verið eina stóra tækifærið sem maður fær." Endless Dark spilar einnig með bandarísku hljómsveitinni Madina Lake á nokkrum tónleikum í Bretlandi en sú sveit er ákaflega vinsæl þar um slóðir. Hún var kjörin besti erlendi nýliðinn á Kerrang!-tónlistarhátíðinni árið 2007 og spilar einmitt á aðalsviðinu á Sonisphere í ár. Þegar er orðið uppselt á tónleika Madina Lake og Endless Dark á hinum þekkta stað Barfly í London hinn 4. ágúst. Lagið Cold, Hard December af væntanlegri EP-plötu Endless Dark er á leiðinni í loftið, sem og myndband við lagið sem var tekið upp í Bretlandi fyrr á árinu. Rétt fyrir upptökurnar náði hljómsveitin öðru sæti í hæfileikakeppninni Global Battle of the Bands sem var haldin í London og vakti fyrir það mikla athygli.freyr@frettabladid.is
Mest lesið Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Lífið Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden Lífið Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Lífið Daniil gefur út lag með Kodak Black: „Trúi þessu ekki ennþá“ Tónlist Lofar nýrri Ódysseifskviðu fyrir árslok Bíó og sjónvarp Seinleg heimför sakbitins Ódysseifs Gagnrýni „La La Höndin“ úr sögunni Lífið Ali G snýr aftur Bíó og sjónvarp Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Lífið Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Lífið Fleiri fréttir Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Sjá meira