Nokkur stórafmæli í kortunum 5. janúar 2010 05:30 Afmæli í ár. Páll Óskar verður með ferfalt afmælispartí, en Bubbi og Stuðmenn eru enn að spá í hvort þeir haldi upp á ferilsafmælin sín.
Ef að líkum lætur verður árið viðburðaríkt, enda er þetta afmælisár fyrir marga. Til dæmis verður Páll Óskar fertugur, fjörutíu ár sömuleiðis verða síðan Stuðmenn komu fram í fyrsta skipti og fjörutíu ár verða síðan Listahátíð í Reykjavík var haldin fyrst. Þá verða þrjátíu ár liðin síðan Bubbi Morthens sló í gegn því bæði Ísbjarnarblús og Geislavirkir Utangarðsmanna komu út 1980. En á að halda upp á þetta? „Já!“ segir Páll Óskar Hjálmtýsson, sem verður fertugur þriðjudaginn 16. mars. „Ég verð með fjögur partí, eitt fyrir hvern áratug. Eins og planið er núna byrja ég á Nasa fimmtudaginn fyrir afmælið þegar ég held tónleika með Hjaltalín. Daginn eftir verður lítið matarboð fyrir blóðfjölskylduna. Laugardaginn 13. mars verður megapartí á Nasa en á afmælisdeginum sjálfum verður bara pínulítið matarborð fyrir mína nánustu vini.“ Palli sér ekki fram á að ný plata komi út á afmælisárinu – „Ég á frekar von á því að ég gefi út tvö, þrjú lög og geri vídeó við þau öll því ég elska að gera músíkvídeó. Ég ætla allavega ekki að stressa mig á því að prumpa út plötu 2010. En við erum alltaf að dúlla okkur. Ég og Örlygur Smári, Trausti Haralds og Toggi.“Skoða og pælaJakob Frímann segir vissulega rétt að í ár verði fjörutíu ár liðin síðan Stuðmenn komu fyrst fram á MH-skólaballi á Hótel Sögu. „En það skýrist ekki fyrr en á næstu vikum hvort það verður eitthvað sérstaklega haldið upp á það,“ segir hann.„Þetta voru ansi skrautleg ár sem komu þarna í kjölfarið og óminnishegrinn flögrandi yfir hausamótunum á sumum.“ Kannski Jakob og félagar bíði til 2015 þegar fjörutíu ár verða liðin síðan Sumar á Sýrlandi, sem gerði bandið að almenningseign, kom út.Bubbi er álíka óráðinn og Jakob með sitt afmælisár. Hann sér hvorki endurkomu Utangarðsmanna né Ísbjarnarblús-tónleika í kortunum eins og er. „En hvað vitum við, maður? Samanber það að fyrir þremur árum var hér allt í blússandi sveiflu. Við erum bara að skoða þetta og pæla. Ég er svo að bíða eftir að Pétur Hallgrímsson klári túrinn með Emilíönu Torrini, því við erum að pæla í að taka upp plötu, ég og strákarnir mínir [Stríð og friður].“Ekkert stórrokk á ListahátíðÞað mun sjást á listahátíð í ár að hún fagnar fertugsafmæli. Led Zeppelin kemur þó ekki aftur (eins og 1970) og ekki verður boðið upp á nein innflutt risanúmer í poppi eða rokki, frekar en undanfarin ár.„Þemað í ár verða ljósmyndir og það verða bókstaflega ljósmyndir út um allan bæ, bæði í galleríum og utan þeirra,“ segir Steinunn Þórhallsdóttir kynningarstjóri. „Listahátíð speglar alltaf samtímann og það verða ekki fluttir inn neinir listamenn á sama skala og 2007. Það rýrir ekkert innihaldið að mínu mati. Prógrammið skýrist á næstu vikum, en ég get sagt að við erum að fá risanöfn í klassíska heiminum, norska píanósnillinginn Leif Ove Andsnes og Tetzlaff-systkinin.“drgunni@centrum.is
Mest lesið Gat ekki haldið aftur af blótsyrðum við sigurinn Tónlist Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Menning Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Lífið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Britney farin í meðferð Lífið Fleiri fréttir Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Sjá meira