Jakob Frímann spyrill á Lista- og ölhátíð 6. október 2010 21:58 Búast má við hörkukeppni hjá Jakobi en dagskrá hátíðarinnar á Bar 46 er hin glæsilegasta.
Mjög fjölbreytt dagskrá verður í boði á Lista- og ölhátíð Bar 46 á Hverfisgötu um helgina. Meðal atburða er hin víðfræga spurningakeppni staðarins og er það Jakob Frímann Magnússon Stuðbolti sem mun annast hana í tilefni hátíðarinnar. Þá munu tvær gamlar rokksveitir snúa aftur eftir nær aldarfjórðungshlé, Þorfinnur Guðnason verður með aðra frumsýningu á nýju heimildarmynd sinni Garðarshólmi, hátt í tuttugu myndlistarmenn sýna listir sínar og leikhópurinn Peðið frumsýnir nýtt leikrit. Þá munu blaðamaður og Breiðuvíkurdrengur bjóða gestum upp á kreppusúpu. Alls eru um 30 atriði í boði gestum til skemmtunnar og fróðleiks en hátíðin hefst á fimmtudag. Fyrir utan framangreint má nefna að stuttmyndasýningar verða í boði þar sem fimm ungir leikstjórar sýna myndir sínar. Lindy Ravers sýna dansatriði og kenna þeim sem vilja að dansa Lindy. Rokksveitirnar sem hér um ræðir eru Melchoir, með þá Hilmar Oddsson og Karl Roth í broddi fylkingar og Kamarorghestarnir með þeim Lísu Páls útvarpskonu og eiginmanni hennar Björgúlfi Egilssyni ásamt hvalasérfræðingnum Gísla Víkingssyni og fleiri góðkunnum. Sú sveit gerði garðinn frægan í Kaupmannahöfn á árunum fyrir þjóðarsáttina á síðustu öld. Þá eru ótalin atriði eins og bókauppboð á vegum Braga Kristjónssonar, hugleiðingar Birnu Þórðardóttur og Jóns Proppé og sveitaballastemming föstudags og laugardagskvöld. Á föstudag eru það Gæðablóð sem skemmtir en Úlfarnir á laugardagskvöldinu. Ölkynning verður á vegum Ölgerðarinnar á laugardeginum og fastagestir efna til ballskákmóts. Að auki munu fjórir af föstustu gestunum taka lagið í kvartettnum Rakar raddir undir stjórn Tómasar Tómassonar. Einnig mun Guðjón Sigvalda sýna Tom Lehrer uppistand sitt en margir hafa beðið með óþreyju í mörg ár að heyra það að nýju.
Mest lesið Stefán Teitur á skeljarnar Lífið Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Lífið Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Bíó og sjónvarp Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið Lífið Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Lífið Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Lífið Stendur fyrir auðmannsgleði í Elliðaárdal Menning 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Lífið Fleiri fréttir Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Sjá meira