Fótbolti

Rooney þurfti að biðjast afsökunar

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
AFP
Wayne Rooney hefur beðist afsökunar á ummælum sínum um stuðningsmenn enska landsliðsins í Suður-Afríku. Rooney var mjög ósátur þegar þeir bauluðu á enska liðið eftir markalaust jafntefli þess gegn Alsír. "Ég sagði þetta í hita leiksins og vegna pirrings yfir frammistöðu okkar," segir í yfirlýsingu frá enska knattspyrnusambandinu. "Ég biðst afsökunar á móðgunum mínum með ummælunum."

Tengdar fréttir

Rooney brjálaður yfir baulinu í gær

Enska pressan tók liðið sitt nánast af lífi eftir jafntefli þeirra við Alsír í gær. Leikur liðsins olli gríðarlegum vonbrigðum heima fyrir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×