Tilnefningar til íslensku leiklistarverðlaunanna Grímunnar 2010 voru opinberaðar við formlega athöfn í Þjóðleikhúskjallaranum síðdegis í dag.
Borgarleikhúsið hlýtur flestar tilnefningar þetta árið, alls 34. Þetta eru fleiri tilnefningar en leikhús hefur nokkru sinni hlotið í sögu Grímunnar
á einu ári.
Þá eru fjórar af fimm sýningum ársins uppsetningar Borgarleikhúss. Þetta eru sýningarnar Fjölsyldan, Faust, Jesús litli og Djúpið.
Fimmta sýningin er uppsetning Þjóðleikhússins á Íslandsklukkunni.
Íslensku leiklistarverðlaunin - Gríman er uppskeruhátíð leikhúsfólks og afhent í lok hvers leikárs til þeirra sem þótt hafa skarað
fram úr á liðnu leikári.
Grímuhátíðin verður haldin hátíðleg í áttunda sinn, nú í Þjóðleikhúsinu 16. júní n.k. og verður athöfninni sjónvarpað beint á Stöð 2.
Tilnefningar til Grímuverðlauna eru listaðar í heild sinni hér fyrir neðan.
SÝNING ÁRSINS 2010
DJÚPIÐ
eftir Jón Atla Jónasson
leikstjórn Jón Atli Jónasson
Leikfélag Reykjavíkur og Strit
Borgarleikhúsið
FAUST
eftir Björn Hlyn Haraldsson, Carl Grose, Gísla Örn Garðarsson, Nínu Dögg Filippusdóttur og Víking Kristjánsson
leikstjórn Gísli Örn Garðarsson
Leikfélag Reykjavíkur og Vesturport
Borgarleikhúsið
FJÖLSKYLDAN - ÁGÚST Í OSAGE-SÝSLU
eftir Tracy Letts
í þýðingu Sigurðar Hróarssonar
leikstjórn Hilmir Snær Guðnason
Leikfélag Reykjavíkur
Borgarleikhúsið
ÍSLANDSKLUKKAN
leikgerð eftir Benedikt Erlingsson
byggt á skáldsögu eftir Halldór Laxness
leikstjórn Benedikt Erlingsson
Þjóðleikhúsið
JESÚS LITLI
eftir Benedikt Erlingsson, Berg Þór Ingólfsson, Halldóru Geirharðsdóttur, Kristjönu Stefánsdóttur og Snorra Frey Hilmarsson
leikstjórn Benedikt Erlingsson
Leikfélag Reykjavíkur
Borgarleikhúsið
LEIKSTJÓRI ÁRSINS 2010
Baltasar Kormákur fyrir leikstjórn í leiksýningunni Gerplu í sviðssetningu Þjóðleikhússins
Benedikt Erlingsson fyrir leikstjórn í leiksýningunni Íslandsklukkunni í sviðssetningu Þjóðleikhússins
Benedikt Erlingsson fyrir leikstjórn í leiksýningunni Jesúsi litla í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur, Borgarleikhúsi
Hilmir Snær Guðnason fyrir leikstjórn í leiksýningunni Fjölskyldunni - ágúst í Osage-sýslu í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur, Borgarleikhúsi
Kristín Eysteinsdóttir fyrir leikstjórn í leiksýningunni Dúfunum í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur, Borgarleikhúsi
LEIKSKÁLD ÁRSINS 2010
Andri Snær Magnason og Þorleifur Örn Arnarsson fyrir leikverkið Eilíf óhamingja í sviðssetningu Hins lifandi leikhúss og Leikfélags Reykjavíkur, Borgarleikhúsi
Benedikt Erlingsson, Bergur Þór Ingólfsson, Halldóra Geirharðsdóttir, Kristjana Stefánsdóttir og Snorri Freyr Hilmarsson fyrir leikverkið Jesús litli í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur, Borgarleikhúsi
Bragi Ólafsson fyrir leikverkið Hænuungarnir í sviðssetningu Þjóðleikhússins
Jón Atli Jónasson fyrir leikverkið Djúpið í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur, Borgarleikhúsi og Strits
Kristján Þórður Hrafnsson fyrir leikverkið Fyrir framan annað fólk í sviðssetningu Hafnarfjarðarleikhússins og Venjulegs fólks
LEIKKONA ÁRSINS 2010 Í AÐALHLUTVERKI
Brynhildur Guðjónsdóttir fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Frida... viva la vida í sviðssetningu Þjóðleikhússins
Halldóra Geirharðsdóttir fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Dúfunum í sviðssetningu Borgarleikhússins
Halldóra Geirharðsdóttir fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Jesúsi litla í sviðssetningu Borgarleikhússins
Margrét Helga Jóhannsdóttir fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Fjölskyldunni - ágúst í Osage- sýslu í sviðssetningu Borgarleikhússins
Sigrún Edda Björnsdóttir fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Fjölskyldunni - ágúst í Osage- sýslu í sviðssetningu Borgarleikhússins
LEIKARI ÁRSINS 2010 Í AÐALHLUTVERKI
Eggert Þorleifsson fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Hænuungunum í sviðssetningu Þjóðleikhússins
Hilmir Snær Guðnason fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Faust í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur, Borgarleikhúsi og Vesturports
Ingvar E. Sigurðsson fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Djúpinu í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur, Borgarleikhúsi og Strits
Ingvar E. Sigurðsson fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Íslandsklukkunni í sviðssetningu Þjóðleikhússins
Þorsteinn Gunnarsson fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Faust í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur, Borgarleikhúsi og Vesturports
LEIKKONA ÁRSINS 2010 Í AUKAHLUTVERKI
Guðrún Snæfríður Gísladóttir fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Íslandsklukkunni í sviðssetningu Þjóðleikhússins
Ilmur Kristjánsdóttir fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Íslandsklukkunni í sviðssetningu Þjóðleikhússins
Jóhanna Vigdís Arnardóttir fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Fjölskyldunni - ágúst í Osage-sýslu í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur, Borgarleikhúsi
Kristbjörg Kjeld fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Hænuungunum í sviðssetningu Þjóðleikhússins
Kristín Þóra Haraldsdóttir fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Gauragangi í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur, Borgarleikhúsi
LEIKARI ÁRSINS 2010 Í AUKAHLUTVERKI
Atli Rafn Sigurðarson fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Eilífri óhamingju í sviðssetningu Hins lifandi leikhúss og Leikfélags Reykjavíkur, Borgarleikhúsi
Björn Thors fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Íslandsklukkunni í sviðssetningu Þjóðleikhússins
Jón Páll Eyjólfsson fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Íslandsklukkunni í sviðssetningu Þjóðleikhússins
Pálmi Gestsson fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Hænuungunum í sviðssetningu Þjóðleikhússins
Theodór Júlíusson fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Fjölskyldunni - ágúst í Osage-sýslu í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur, Borgarleikhúsi
SÖNGVARI ÁRSINS 2010
Ágúst Ólafsson fyrir hlutverk sitt í óperunni Ástardrykknum í sviðssetningu Íslensku óperunnar
Bjarni Thor Kristinsson fyrir hlutverk sitt í óperunni Ástardrykknum í sviðssetningu Íslensku óperunnar
Dísella Lárusdóttir fyrir hlutverk sitt í óperunni Ástardrykknum í sviðssetningu Íslensku óperunnar
Garðar Thor Cortes fyrir hlutverk sitt í óperunni Ástardrykknum í sviðssetningu Íslensku óperunnar
Kristjana Stefánsdóttir fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Jesúsi litla í sviðssetingu Leikfélags Reykjavíkur, Borgarleikhúsið.
LEIKMYND ÁRSINS 2010
Axel Hallkell Jóhannesson fyrir leikmynd í leiksýningunni Faust í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur, Borgarleikhúsi og Vesturports
Börkur Jónsson fyrir leikmynd í leiksýningunni Fjölskyldunni - ágúst í Osage-sýslu í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur, Borgarleikhúsi
Börkur Jónsson fyrir leikmynd í leiksýningunni Hænuungunum í sviðssetningu Þjóðleikhússins
Finnur Arnar Arnarson fyrir leikmynd í leiksýningunni Íslandsklukkunni í sviðssetningu Þjóðleikhússins
Gretar Reynisson fyrir leikmynd í leiksýningunni Gerplu í sviðssetningu Þjóðleikhússins
BÚNINGAR ÁRSINS 2010
Filippía I. Elísdóttir fyrir búninga í leiksýningunni Faust í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur, Borgarleikhúsi og Vesturports
Filippía I. Elísdóttir fyrir búninga í leiksýningunni Frida... viva la vida í sviðssetningu Þjóðleikhússins
Filippía I. Elísdóttir og Guðrún Ragna Sigurjónsdóttir fyrir búninga í leiksýningunni Völvu í sviðssetningu Pálínu frá Grund og Þjóðleikhússins
Helga Björnsson fyrir búninga í leiksýningunni Íslandsklukkunni í sviðssetningu Þjóðleikhússins
Helga I. Stefánsdóttir fyrir búninga í leiksýningunni Gerplu í sviðssetningu Þjóðleikhússins
LÝSING ÁRSINS 2010
Björn Bergsteinn Guðmundsson fyrir lýsingu í leiksýningunni Fjölskyldunni - ágúst í Osage-sýslu í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur, Borgarleikhúsi
Halldór Örn Óskarsson og Lárus Björnsson fyrir lýsingu í leiksýningunni Íslandsklukkunni í sviðssetningu Þjóðleikhússins
Kjartan Þórisson fyrir lýsingu í leiksýningunni Jesúsi litla í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur, Borgarleikhúsi
Lárus Björnsson fyrir lýsingu í leiksýningunni Gerplu í sviðssetningu Þjóðleikhússins
Þórður Orri Pétursson fyrir lýsingu í leiksýningunni Faust í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur, Borgarleikhúsi og Vesturports
TÓNLIST ÁRSINS 2010
Davíð Þór Jónsson fyrir tónlist í leiksýningunni Af ástum manns og hrærivélar í sviðssetningu CommonNonsense og Þjóðleikhússins
Eiríkur Stephensen og Hjörleifur Hjartarson fyrir tónlist í leiksýningunni Íslandsklukkunni í sviðssetningu Þjóðleikhússins
Gísli Galdur Þorgeirsson fyrir tónlist í leiksýningunni Gerplu í sviðssetningu Þjóðleikhússins
Kristjana Stefánsdóttir fyrir tónlist í leiksýningunni Jesúsi litla í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur, Borgarleikhúss
Nick Cave og Warren Ellis fyrir tónlist í leiksýningunni Faust í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur, Borgarleikhússins og Vesturports
HLJÓÐMYND ÁRSINS 2010
Davíð Þór Jónsson fyrir hljóðmynd í leiksýningunni Af ástum manns og hrærivélar í sviðssetningu CommonNonsense og Þjóðleikhússins
Frank Hall og Thorbjörn Knudsen fyrir hljóðmynd í leiksýningunni Faust í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur, Borgarleikhússins og Vesturports
Gísli Galdur Þorgeirsson fyrir hljóðmynd í leiksýningunni Gerplu í sviðssetningu Þjóðleikhússins
Ólafur Örn Thoroddsen fyrir hljóðmynd í leiksýningunni Harry og Heimir - með öðrum morðum í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur, Borgarleikhússins
Walid Breidi fyrir hljóðmynd í leiksýningunni Völvu í sviðssetningu Pálínu frá Grund og Þjóðleikhússins
DANSHÖFUNDUR ÁRSINS 2010
Alan Lucien Öyen fyrir kóreógrafíu í danssýningunni Endalaus í sviðssetningu Íslenska dansflokksins
Ásgerður G. Gunnarsdóttir, Katrín Gunnarsdóttir, Melkorka Sigríður Magnúsdóttir og Ragnheiður S. Bjarnarson fyrir kóreógrafíu í danssýningunni Shake Me í sviðssetningu Íslensku hreyfiþróunarsamsteypunnar
Bergþóra Einarsdóttir, Laila Tarfur og Leifur Þór Þorvaldsson fyrir kóreógrafíu í tilraunasýningunni Endurómun. Borgarleikhúsið.
Brian Gerke og Steinunn Ketilsdóttir fyrir kóreógrafíu í danssýningunni Love always, Debbie and Susan í sviðssetningu Reykjavík Dance Festival og Steinunn and Brian
Erna Ómarsdóttir fyrir kóreógrafíu í danssýningunni Teach us to outgrow our madness í sviðssetningu Shalala og Þjóðleikhússins
Steinunn Ketilsdóttir fyrir kóreógrafíu í danssýningunni Superhero í sviðssetningu Reykjavík Dance Festival og Steinunn and Brian
Tony Vezich fyrir kóreógrafíu í danssýningunni Hjartastreita í sviðssetningu Íslenska dansflokksins
DANSARI ÁRSINS 2010
Aðalheiður Halldórsdóttir fyrir hlutverk sitt í danssýningunni Endalaus í sviðssetningu Íslenska dansflokksins
Aðalheiður Halldórsdóttir fyrir hlutverk sitt í danssýningunni Heilabrot í sviðssetningu Íslenska dansflokksins og Steinunn and Brian
Emilía Benedikta Gísladóttir fyrir hlutverk sitt í danssýningunni Hjartastreitu í sviðssetningu Íslenska dansflokksins
Steinunn Ketilsdóttir fyrir hlutverk sitt í danssýningunni Superhero í sviðssetningu Reykjavík Dance Festival og Steinunn and Brian
Valgerður Rúnarsdóttir fyrir hlutverk sitt í danssýningunni Teach us to outgrow our madness í sviðssetningu Shalala og Þjóðleikhússins
BARNASÝNING ÁRSINS 2010
ALGJÖR SVEPPI - DAGUR Í LÍFI STRÁKS
eftir Gísla Rúnar Jónsson
leikstjórn Felix Bergsson
Á þakinu
BLÁA GULLIÐ
eftir Charlotte Böving, Maríu Pálsdóttur, Sólveigu Guðmundsdóttur og Víking Kristjánsson
leikstjórn Charlotte Böving
Leikfélag Reykjavíkur og Opið út
Borgarleikhúsið
FÍASÓL
eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur
leikgerð Kristín Helga Gunnarsdóttir og Vigdís Jakobsdóttir
leikstjórn Vigdís Jakobsdóttir
Þjóðleikhúsið
HORN Á HÖFÐI
eftir Berg Þór Ingólfsson og Guðmund S. Brynjólfsson
leikstjórn Bergur Þór Ingólfsson
GRAL - Grindvíska atvinnuleikhúsið
SINDRI SILFURFISKUR
eftir Áslaugu Jónsdóttur
leikstjórn Þórhallur Sigurðsson
Þjóðleikhúsið
ÚTVARPSVERK ÁRSINS 2010
EINFARAR
eftir Hrafnhildi Hagalín
aðalhlutverk: Árni Tryggvason, Bryndís Pétursdóttir, Erlingur Gíslason, Herdís Þorvaldsdóttir, Karl Guðmundsson, Margrét Ólafsdóttir, Róbert Arnfinnsson, Steindór Hjörleifsson og Þóra Friðriksdóttir
aðrir leikendur: Arnbjörg Hlíf Valsdóttir, Arndís Hrönn Egilsdóttir, Björn Thors, Davíð Guðbrandsson, Eva María Jónsdóttir, Guðrún Snæfríður Gísladóttir, Jóhann Sigurðarson, Kristbjörg Kjeld, Ragnheiður Steindórsdóttir, Sigríður Hagalín Pétursdóttir, Stefán Jónsson, Unnur Birna Jónsdóttir
hljóðsetning Einar Sigurðsson
leikstjórn Hrafnhildur Hagalín
SAGAN AF ÞRIÐJUDEGI
eftir Steinar Braga
leikendur: Hjálmar Hjálmarsson, Kristján Franklín Magnús, Sigurður Skúlason, Valur Freyr Einarsson og Þröstur Leó Gunnarsson
tónlist Hallur Ingólfsson
hljóðsetning Einar Sigurðsson
leikgerð og leikstjórn Bjarni Jónsson
VEGGIR MEÐ EYRU
eftir Þorsteinn Guðmundsson
leikendur: Björn Hlynur Haraldsson, Nína Dögg Filippusdóttir, Víkingur Kristjánsson og Þórunn Magnea Magnúsdóttir
hljóðsetning Einar Sigurðsson
leikstjórn Hjálmar Hjálmarsson
Borgarleikhúsið með flestar tilnefningar til Grímunnar

Mest lesið




Drottningar landsins kjörnuðu sig með Ernu Bergmann
Tíska og hönnun

Myndaveisla frá Írskum dögum - Bylgjulestin 2025
Lífið samstarf




Flottasti garður landsins - taktu þátt!
Lífið samstarf
