Gylfi baunar á borgarstjórann 1. apríl 2010 05:00 Gylfi í Kimono segir Hönnu Birnu hafa hent út athugasemd frá sér um miðbæinn en aðstoðarmaður hennar, Magnús Þór, segir það ekki hafa verið viljandi gert.
Tónlistarmaðurinn Gylfi Blöndal er ósáttur við Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgarstjóra og sakar hana um að hunsa athugasemdir sínar. „Hanna Birna, eða einhver á hennar vegum, eyddi út athugasemd sem ég setti inn á Facebook-síðuna hennar á mánudaginn,“ segir Gylfi Blöndal, gítarleikari í Kimono og skipuleggjandi hjá rokkbúllunni Sódómu Reykjavík. Gylfi setti inn athugasemd í framhaldi af lesendabréfi Hönnu Birnu í Fréttablaðinu á mánudaginn, þar sem hún dásamaði samstillt hreinsunarátak borgarinnar og íbúanna, sem nú er að fara í gang. „Ég sagðist vera að hlæja mig máttlausan yfir hreinsunarátaki Reykjavíkurborgar og lagði til að Hanna Birna byrjaði á að ganga um miðbæinn og virða fyrir sér brunarústir, yfirgefin hús, ófrágengna húsgrunna og annað rusl,“ segir Gylfi og bætir við: „Gettó-væðing miðbæjarins er í fullum gangi. Ég veit ekki í hvaða hverfi Hanna býr en ég er viss um að þar færi allt á annan endann ef það sama yrði látið viðgangast þar og í 101.“ Aðstoðarmaður Hönnu Birnu, Magnús Þór Gylfason, segir að þessi samsæriskenning Gylfa eigi ekki við nokkur rök að styðjast. „Það var einfaldlega verið að breyta stillingum á síðunni og þá féllu því miður einhverjar af athugasemdunum út, ekki bara athugasemdin hans. Þetta var bara góð hvatning til borgaryfirvalda hjá honum. Því hefði engin ástæða verið til að henda henni út, enda fagnar borgarstjóri öllum viðbrögðum og ábendingum borgarbúa. Varðandi ástandið í miðbænum þá er miklum fjármunum varið til hreinsunar þar, en umrætt hreinsunarátak mun að sjálfsögðu taka til þess svæðis eins og til annarra svæða í borginni. Ég vona að Gylfi taki þátt í því með okkur.“drgunni@frettabladid.is
Mest lesið Sætar og seiðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Borgarbörnin orðin sveitaballasjúk: „Ef þú ferð þangað sérðu ekki einn síma á lofti“ Lífið Coldplay kom óvart upp um framhjáhald forstjórans Lífið Tognaður í báðum lærum og blöðrur á öllum tám Lífið Malkovich klipptur út úr Hinum fjóru fræknu Bíó og sjónvarp 50+: Grái fiðringurinn hjá kallinum ekkert endilega vesen Áskorun Bragason leikur Zeldu prinsessu Lífið Næturskrunið eyðileggi svefninn og ungmennin vansvefta Lífið Af hverju vinkar Teslan alltaf á sama stað? Lífið „Ég gat ekki haldið aftur tárunum“ Lífið Fleiri fréttir Bragason leikur Zeldu prinsessu Borgarbörnin orðin sveitaballasjúk: „Ef þú ferð þangað sérðu ekki einn síma á lofti“ Næturskrunið eyðileggi svefninn og ungmennin vansvefta Ótrúleg upplifun að vera í algjöru myrkri á tónleikum Tognaður í báðum lærum og blöðrur á öllum tám Sætar og seiðandi einhleypar sumarskvísur Coldplay kom óvart upp um framhjáhald forstjórans Útilokar fimmta hjónabandið: „Ég held ég sé búinn með það“ Sýnishorn úr nýjustu mynd Hlyns Pálmasonar Pete Davidson að verða pabbi: „Nú vita allir að við sváfum saman“ Af hverju vinkar Teslan alltaf á sama stað? Connie Francis er látin „Maður þarf alltaf að hafa augun opin“ „Ég gat ekki haldið aftur tárunum“ Birta og Króli eiga von á dreng Sumarlegt og ofurhollt kínóasalat að hætti Jönu Emma Watson svipt ökuleyfinu Yngsti gusumeistari landsins Sjarmerandi raðhús í 105 Sögufrægur gítar Stones fannst hálfri öld eftir að honum var stolið „Þetta er miklu stærra en fólk gerir sér grein fyrir“ „Óljósir, fallegir og stundum óþægilegir hlutir“ Óútgefinni tónlist Beyoncé stolið úr bíl danshöfundar „Þú stýrir þínum rokkstjörnulífsstíl“ „Yndislegir vinir gáfu okkur saman í plötubúð“ Sögulegt sveitaball í hundrað ár Boxari selur íbúð með heitum potti og Esju útsýni Telur að 511 kílómetra hlaupið styrki hlauparann „Kókaín hefur tekið mig aftur og aftur til helvítis“ Ómissandi gönguleiðir sem þú verður að prófa Sjá meira