Bretar standa við bakið á Cheryl 19. febrúar 2010 04:15 Skilnaður í uppsiglingu Víst er að breskir fjölmiðlar eiga eftir að fylgja eftir hverju spori sem Ashley og Cheryl Cole taka á næstunni. Daily Mail spáir því að skilnaður sé á næsta leiti.
Söngkonan Cheryl Cole flúði Bretland í vikunni eftir að fjölmiðlar greindu frá framhjáhaldi eiginmanns hennar, Ashley Cole. Breska þjóðin stendur þétt við bakið á sinni konu og hvetur hana til að skilja. Cheryl og Ashley Cole eru meðal frægustu para Bretlands. Hann er leikmaður Lundúnaliðsins Chelsea og enska landsliðsins, hún er dómari í vinsælu þáttunum X-Factor og syngur með stúlknasveitinni Girls Aloud. En Ashley hefur hrapað hratt niður vinsældalista bresku þjóðarinnar eftir að götublaðið The Sun greindi frá framhjáhaldi hans á þriðjudaginn. Skömmu áður hafði nektarmyndum af þessum bakverði Chelsea verið lekið til fjölmiðla en þær átti hann að hafa sent til íturvaxinnar undirfatafyrirsætu. Ashley neitaði öllum sakargiftum, viðurkenndi vissulega að hafa tekið af sér myndir en einhverjir óprúttnir náungar, vinir vina hans eins og hann komst að orði, hefðu komist yfir símann og sent myndirnar. En heldur syrti í álinn hjá Ashley þegar ung ljóshærð snót bankaði upp hjá The Sun og upplýsti í blaðaviðtali að hún hefði fengið erótísk sms-skilaboð frá knattspyrnuhetjunni og að þau hefðu átt stundargaman uppi á hótelherbergi landsliðsmannsins, oftar en einu sinni. The Sun gerði nýverið könnun meðal lesenda sinna og niðurstaða hennar var nánast einróma; Cheryl ætti að losa sig við Ashley fyrir fullt og allt. Aðeins fimm prósent þeirra sem tóku þátt vildu að Cheryl og Ashley ættu að vinna í sínum málum. 25 prósent tóku ekki afstöðu. Málið er allt hið vandræðalegasta fyrir Chelsea og jafnvel enska landsliðið því fyrir skömmu var greint frá því að fyrirliði liðanna tveggja, John Terry, hefði verið konu sinni ótrúr með fyrrum kærustu samherja síns. Carlo Ancelotti, framkvæmdastjóri Chelsea, sagði í fjölmiðlum að honum væri sama hvar sínir menn svæfu á næturnar. Fabio Capello var ekki á sama máli og hefur svipt John Terry fyrirliðastöðunni hjá enska landsliðinu.
Mest lesið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Lífið Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Lífið Allir og amma þeirra í bókaklúbb Lífið Fleiri fréttir Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Sjá meira