Lífið

Rómeóbylgjan hefst á þriðjudag

Úr Rómeó og Júlíu Vesturports 2002: Nína Dögg sem Júlía og Ólafur Darri sem fóstran.
Úr Rómeó og Júlíu Vesturports 2002: Nína Dögg sem Júlía og Ólafur Darri sem fóstran.

Tólf sýningar verða í boði á næstu vikum á hinum sígilda sjónleik Williams Shakespeare, Rómeó og Júlíu, í Borgarleikhúsinu. Vesturport er enn eina ferðina að rifja upp sviðsetningu sína sem farið hefur víða um lönd og var í tvígang á fjölunum í London eftir að hafa notið mikilla vinsælda hér heima á Litla sviði Borgarleikhússins 2002. Er þetta sú leiksýning íslensk sem átt hefur lengstu lífi að fagna. Nú verður hún endurlífguð á Stóra sviðinu og er hluti af áskriftarsýningum hússins frá liðnu hausti.

Hallgrímur Helgason þýddi verkið að nýju þegar Vesturport undir leikstjórn þeirra Gísla Arnar Garðarssonar og Agnars Jóns Egilssonar setti sýninguna á svið. Katrín Hall sá um dansa en Börkur Jónsson og Þórunn Elísabet Sveinsdóttir sáu um útlit leikmyndar og búninga. Sýningar hefjast 11. maí.

Önnur sviðsetning á sama verki verður í samstarfi Borgar­leikhússins og Listahátíðar í Reykjavík boðin áhugasömum gestum, en það er tíu ára gömul sviðsetning sem hefur farið víða á þeim áratug: Leikstjóri er Oskar Korsunovas og verða sýningar tvær: 14. og 15. maí. Kostunovas er einn besti leikstjóri heimsins í dag. Þessi uppsetning hefur ferðast um heiminn undanfarin tíu ár og er því ferðalagi langt frá því lokið. Í þessari uppsetningu berjast ættir tvær í bakaríum sem þær reka hvor um sig. Kraftur, húmor og magnað sjónarspil einkenna sýninguna. Oskaras er einn fremsti leikstjóri Evrópu en hann hefur verið ráðinn til að leikstýra jólasýningu Borgarleikhússins 2010 en það er Ofviðrið eftir Shakespeare.

Heitið var þriðju sýningunni í haust í kynningarherferð Borgar­leikhússins á þessu kunna verki í sviðsetningu Þorleifs Arnarssonar frá St. Gallen í Sviss en ekki bólar á henni og er vísast um að kenna kreppunni.

Græna ljósið hleypur undir og sýnir hina frábæru kvikmynd Baz Luhrmann eftir verkinu þar sem þau Leonardo DiCaprio og Clare Danes léku svo eftirminnilega þau Rómeó og Júlíu. Sýnt verður í Háskólabíó 20. og 21. maí kl. 20.- pbb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.