Lífið

Ingvar staðgengill Magga Ólafs

Var eins og fílamaðurinn! Magnús Ólafsson komst í hann krappann á Mömmu Gógó. Ingvar E. Sigurðsson leysti hann af.
Var eins og fílamaðurinn! Magnús Ólafsson komst í hann krappann á Mömmu Gógó. Ingvar E. Sigurðsson leysti hann af.

„Ég missti eina tröppu úr þegar ég var fara á klósettið í hléinu á Mömmu Gógó, datt kylliflatur og hálfrotaðist. Lét mig þó hafa það að klára myndina. Ég var með kúlu á hausnum og það var ekki fyrr en daginn eftir að ég fór að finna fyrir þessu. Ég endaði á spítala og var þar fjóra daga. Ég missti svo mikið blóð. Það rifnaði eitthvað inni mér," segir leikarinn Magnús Ólafsson, sem komst í hann krappann á dögunum. Slysið kom sér illa því Magnús var bókaður í stuttmynd.

„Ég átti að fara að glíma við mjög skemmtilegt hlutverk í nýrri stuttmynd sem María Reyndal er að gera," segir hann. „Ég þurfti að sleppa því og Ingvar E. Sigurðsson hljóp í skarðið fyrir mig. Áður en hún sá mig hélt María að það væri bara hægt að sminka yfir þetta, en ég var alveg afskræmdur. Bara eins og Fílamaðurinn í framan!"

Magnús, sem meðal annars er þekktur fyrir hlutverk sín sem Bjössi bolla og bæjarstjórinn í Latabæ, sér mjög eftir þessu hlutverki. „Ég átti að leika illmenni og karlrembu sem flytur inn tailenskar konur," segir hann. „Ég er vanur að leika góða karla svo þetta var mikil áskorun. Ég var efins um að ég gæti þetta en María hafði trú á mér. Við vorum búin að æfa og þetta stefndi allt í rétta átt. Ingvar hefur þó örugglega rúllað þessu upp því hann hefur reynslu í að leika illmenni."

Magnús var fljótur að ná sér eftir hnjaskið - „Ég er stálsleginn núna. Betri en áður, ef eitthvað er," segir hann og hlær. „Ég er að leikstýra hjá Flensborg þessa dagana og svo er bara ýmislegt í deiglunni." - drg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.