Lífið

Rúnagaldur ryður brautina

Elías Snæland Jónsson Rúnagaldur er fyrsta bók Elíasar sem fær dreifingu erlendis. Hún kemur út seinni part næsta árs á vegum Aufbau.
fréttablaðið/valli
Elías Snæland Jónsson Rúnagaldur er fyrsta bók Elíasar sem fær dreifingu erlendis. Hún kemur út seinni part næsta árs á vegum Aufbau. fréttablaðið/valli

„Það er afskaplega gaman að Þjóðverjar skuli hafa áhuga á þessari bók,“ segir rithöfundurinn Elías Snæland Jónsson.

Bók hans, Rúnagaldur, verður gefin út í Þýskalandi á næsta ári og er þetta fyrsta bók Elíasar sem fær dreifingu erlendis. Ryður hún vonandi brautina fyrir næstu bækur hans. „Ég er mest hissa á því hvað þeir voru fljótir til því þeir höfðu samband strax í byrjun desember, nokkrum vikum eftir að bókin kom út.“ Bókin kemur út hjá forlaginu Aufbau sem er mjög virt á sínu sviði og ætti því að fá góða kynningu.

Elías, sem hefur lengi fengist við ritstörf, hefur gefið út þó nokkuð af barna- og unglingabókum. Nágrannalöndin hafa sýnt áhuga á að gefa þær út en aldrei hefur orðið af því. Hann vill þó ekki meina að langþráður draumur sé að rætast með útrásinni til Þýskalands. „Maður er fyrst og fremst að skrifa fyrir íslenskan markað og íslenska neytendur. Það er rós í hnappagatið ef útlendingar hafa áhuga á að gefa út bækur eftir mann en það er ekkert sérstakt keppikefli í sjálfu sér.“

Rúnagaldur er spennusaga sem tengir saman sögur Eddukvæðanna um norrænu goðin og þann áhuga sem sumir af forystumönnum þriðja ríkisins höfðu á kvæðunum. Bókin er einnig sú fyrsta sem útgefandinn Skrudda selur á erlendri grundu. - fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.