Sólinn frá Sandgerði á svið 19. febrúar 2010 06:00 Halldór gylfason Eða Kiddi Casio, söngvari Sólans frá Sandgerði.
Hátíðin Aldrei fór ég suður fer að vanda fram á Ísafirði um páskana. Tilkynnt hefur verið um fyrsta holl skemmtikrafta sem fram kemur. Þar á meðal er hljómsveitin Sólinn frá Sandgerði, sem varð fræg í Vaktarþáttunum. Ólafur Ragnar var umboðsmaður sveitarinnar á tímabili og hafði stórar væntingar. Nú kemur Sólinn fram í fyrsta skipti opinberlega. „Þeir hjá hátíðinni höfðu nú bara samband og vildu að Sólinn tæki lagið, það var ekkert flóknara en það," segir Kiddi Casio, e.þ.s. Halldór Gylfason, söngvari sveitarinnar og aðalsprauta. „Þetta er kærkomið því Sólinn er frábær hljómsveit og það er gott fyrir þennan grænmetisétandi lopapeysuskríl sem verður þarna, að sjá einu sinni almennilega hljómsveit sem FÓLKIÐ fílar." Júlíus Brjánsson á yfir höfði sér lögbann vegna auglýsinga sem hann lék í því karakterinn þótti minna of mikið á pabba Ólafs Ragnars í Vaktarseríunni. Halldór segist ekki vera búinn að fá leyfi til að koma fram með Sólinni. „Kannski verður Sólinn stöðvaður af, ég bara veit það ekki. Ég spurði Jörund um leyfi og hann gaf allavega grænt ljós. Ég þarf að spyrja Jón Gnarr líka næst þegar ég hitti hann. En ef þetta gengur vel þá verður náttúrlega leigð rúta í sumar, gefin út plata og jólalag og lokatakmarkið er svo auðvitað að fara í Eurovision." Aldrei fór ég suður-hátíðin mun í ár teygja sig út um allan bæ og myndlist, uppistand og fleiri viðburðir verða um allan Ísafjörð. Uppistandshópurinn Mið-Ísland mætir, en rokkið verður sem fyrr mest áberandi. Grugg-hljómsveitin Urmull kemur fram í fyrsta skipti síðan um miðjan 10. áratuginn, en í bandinu voru gaurar sem síðar áttu eftir að láta til sín taka í hljómsveitunum Buttercup, Ampop, Dimma og Reykjavík! Í fyrsta hollinu var einnig tilkynnt um að Bloodgroup, Hjaltalín, Morðingjarnir, Rúnar Þór, Dikta, Pollapönk, Ólöf Arnalds og Hudson Wayne kæmu fram.- drg
Mest lesið Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Lífið Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lífið Talay Riley stunginn til bana í Lundúnum Tónlist „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Lífið Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Lífið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Fleiri fréttir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Sjá meira