Holland og Brasilía spila upp á að vinna - ekki til að skemmta Hjalti Þór Hreinsson skrifar 2. júlí 2010 06:45 AFP
Við komum hingað til að vinna – ekki spila fallegan fótbolta. Þetta má lesa úr orðum bæði Dunga og Berts van Marwijk sem mætast með lið sín í átta liða úrslitum HM í dag. Brasilía er í fyrsta sæti á styrkleikalista FIFA og Holland í því fjórða. „Við komum til að vinna, ef við getum spilað fallegan bolta í leiðinni er það bara fínt. En ég sagði líka þegar ég tók að mér þetta starf að við verðum líka að læra hvernig á að vinna ljótu leikina,“ sagði van Marwijk sem hefur úr öllum sínum leikmannahópi að skipa. Sömu sögu er ekki að segja af Dunga sem verður án Ramires, sem er í banni, Elano, sem er meiddur og þá er Felipe Melo tæpur. Þeir hafa allir spilað mikið og því er miðja Brasilíu þunnskipuð þar sem Julio Baptista er einnig tæpur. Gilberto Silva byrjar og Kleberson, fyrrum leikmaður Manchester United, gæti fengið tækifærið eða Josue. Þetta verður fjórða viðureign Hollands og Brasilíu á HM, hvor þjóð hefur unnið einn leik og þau hafa gert eitt jafntefli. „Við vitum að það verða alltaf væntingar um að Brasilía vinni en að vera sigurstranglegastir hjálpar þér ekki að verða heimsmeistari,“ segir Dunga. „Sumir efuðust um að við myndum standa okkur að lokum en því lengra sem við komumst því meira eykst sjálfstraustið. Við vonumst til að komast alla leið í úrslitin, aðalatriðið er að vinna, ekki hvernig við vinnum,“ sagði þjálfarinn. Leikurinn hefst klukkan 14.00 í dag.
HM 2010 í Suður-Afríku Mest lesið Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Fótbolti Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Körfubolti Fimmtán leikmenn meiddir: Er lengra landsleikjahlé betra eða verra? Sport Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ Fótbolti KR vann erkifjendurna sannfærandi Körfubolti Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Fótbolti Fleiri fréttir Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Skrýtinn leiktími og leikmenn því ekki með fulla stjórn Af hverju er svona mikilvægt að vinna riðilinn? Utan vallar: Sögufræg vinátta lögð til hliðar í stutta stund með ógn úr austri til staðar Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Býst við dæmigerðum leik upp á Skaga í Tallinn Kokhraustir Eistar þegar búnir að toppa sig Andleg og líkamleg heilsa fín í mikilli törn Gylfi klár og mun spila stórt hlutverk í kvöld Bíða eftir upplýsingum um hráka Ísraelans Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins Frakkland - Belgía 4-1 | Varamennirnir björguðu Frökkum Sjá meira