Lífið

Alls ekki óþægilegt að sýna nærföt - myndir

„Nei mér finnst alls ekki óþægilegt að sýna nærföt," svarar Guðrún Dögg Rúnarsdóttir. MYNDIR/Halldór Kolbeins.
„Nei mér finnst alls ekki óþægilegt að sýna nærföt," svarar Guðrún Dögg Rúnarsdóttir. MYNDIR/Halldór Kolbeins.

Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum, sem Halldór Kolbeins ljósmyndari tók, fór konukvöld Oliver fram með glæsibrag á laugardaginn.

Húsið var smekkfullt af hressum konum sem gæddu sér á kræsingum og kokteilum.

Þvílíkar drottningar sýndu föt frá tískuvöruversluninni Momo Laugavegi 42, Ég og Þú undirfataverslun Laugavegi og skart frá skartgripasmiðjunni Sign.

Egill Einarsson var spurður spjörunum úr af snillingunum Begga og Heiðari snyrti, sem hélt utan um dagskrá kvöldsins, en þeir þekkja konur betur en flestir karlmenn.

Snyrtiakademían sá um að farða og hárgreiðslustofan Kompaníið um

hár.

„Nei mér finnst alls ekki óþægilegt að sýna nærföt," svarar Guðrún Dögg Rúnarsdóttir ungfrú Ísland 2009 sem var ein af drottningunum sem sýndu undirföt spurð hvernig henni leið að spranga um á nærfötunum í kringum ókunnuga.

Guðrún Dögg Rúnarsdóttir ungfrú Ísland 2009 var ánægð með konukvöldið á Oliver um helgina.

„Þetta var bara mjög gaman og það voru auðvitað bara konur þarna inni og engin ástæða til að vera feimin við það."

„Mér fannst skemmtilegt að hlusta á Heiðar elsku sem hélt stuðinu uppi og svo kom Auddi og dansaði þennan fína Michael Jackson dans sem var bara snilld."

„Bara allt kvöldið í heild sinni var frábært og rosa vel að þessu staðið," segir Guðrún Dögg.-elly@365.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.