Lífið

Fálkar á flugi á Skúlagötu

Alexander Zaklynsky Sýnir fálka á Skúlagötu. Stórbrotnar skepnur, að mati listamannsins.Fréttablaðið/Anton
Alexander Zaklynsky Sýnir fálka á Skúlagötu. Stórbrotnar skepnur, að mati listamannsins.Fréttablaðið/Anton

Alexander Zaklynsky opnar fyrstu einkasýninguna sína í Reykjavík á morgun. Hann sýnir málverk af fálkum á flugi. Það er eins og þeir séu í eltingarleik um veggi gallerísins.

„Ég hef verið svo heppinn að sjá fálka á Íslandi, bæði í Hvalfirði og á Snæfellsnesi. Þetta eru tignarlegir fuglar og það er mikil upplifun að sjá þá á flugi. Ég reyni að túlka það augnablik, þegar maður heyrir fyrst vængjasláttinn í þeim og sér þá svo. Fálkar eru víða tákn um þjóðarstolt. Stórbrotnar skepnur,“ segir Alexander.

Hann hefur búið á Íslandi síðan 2005 en bjó í New York þar á undan. Hann á ættir að rekja til Íslands, Bandaríkjanna og Úkraínu og kom hingað oft sem barn og bjó þá nálægt Selfossi á sumrin. Eftir að Alexander settist hér að stofnaði hann Lost Horse-galleríið, sem var fyrst í gömlu hesthúsi í Skólastræti, en er nú til húsa á Vitastíg. Það pláss er lítið og dugði ekki fyrir fálkana. Sýning Alexanders er því haldin í Reykjavík Art gallerí á Skúlagötu 30. Sýningin verður opnuð á morgun kl. 16 og stendur yfir til 8. mars.drgunni@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.