Sanitas er Icesave-platan í ár 20. mars 2010 03:00 Stafrænn Hákon Ólafur Josephsson er að senda frá sér sjöttu breiðskífuna undir nafninu Stafrænn Hákon. MYnd/Valdís THor
Ólafur Josephsson tónlistarmaður hefur sent frá sér sjöttu breiðskífuna undir nafninu Stafrænn Hákon. Fyrstu plöturnar voru einfalt ósungið heimabrugg en síðustu ár hefur Stafrænn Hákon fært sig upp á skaftið og breyst í hljómsveit með þungan og poppaðan hljóðheim. Sjötta plata Stafræns Hákonar kallast Sanitas og kemur út á vegum Kimi Records eftir páska. Auk þess kemur platan út í Bandaríkjunum á vegum Darla Records og í Asíu á vegum Happy Prince. Ólafur naut aðstoðar ýmissa valinkunnra tónlistarmanna við gerð plötunnar. Þar á meðal samstarfsmanns hans til margra ára, Samuel White, en auk þess hollenskum söngvara sem syngur þrjú lög og breska trommaranum Daniel Lovegrove. „Þetta var svolítið fyndið, Breti, Hollendingur og Íslendingur að vinna að plötu. Þetta er Icesave-platan í ár," segir Ólafur. Fyrstu plötur Stafræns Hákonar voru lágstemmt heimabrugg. Fjör færðist í leikinn með plötunni Gumma sem kom út árið 2007. Og nýjasta tónlist Stafræns Hákonar er enn fjölbreyttari en verið hefur; lögin eru mörg hver poppaðri en áður og tónlistin einhvern veginn markvissari. Þetta þakkar Ólafur samstarfsmönnum sínum, ekki síst trommuleikaranum Daníel, en þegar vinna hófst í hljóðveri með honum var mikið af tónlistinni tekin upp aftur og ýmislegt betrumbætt. Nú er endalaust af aðstoðarkokkum með þér, hefur þú eitthvert hlutverk lengur? „Ég er eiginlega ekkert í þessu bandi lengur," segir Ólafur hlæjandi. „Nei, ég fékk bara leiða á því að vera einn að saga spýtur úti í horni. Ef maður er einn er svo mikil hætta á því að maður festist í sama farinu og sjái ekki heildarmyndina. Daníel trommari hjálpaði mér mikið með það." Hvað með heiti plötunnar, Sanitas? Er þetta bara gamla góða gosdrykkjaverksmiðjan? „Já. Pabbi vann í Sanitas á áttunda áratugnum. Hann er hálfur Íslendingur og hálfur Bandaríkjamaður og býr úti í Bandaríkjunum. Ég er alltaf duglegur að heyra í honum og heimsækja hann og alltaf þegar við ræðum saman spyr hann hvað sé að frétta héðan. Hvað sé að frétta af stóru fyrirtækjunum, eins og Eimskipi, Flugleiðum og Sanitas og svoleiðis. Það er frekar fyndið." Ólafur er nýfluttur heim eftir að hafa verið búsettur erlendis í átta ár, lengst af í Kaupmannahöfn. Hann er kvæntur, tveggja barna faðir og er nú að leita sér að vinnu. „Ég kem beint heim í góðærið," grínast hann með. Ólafur hefur gert hljómsveitina út frá Kaupmannahöfn og fengið tónlist sína gefna út víða. Hann hefur því ekki farið varhluta af því að vera spyrtur við Sigur Rós, þá íslensku sveit sem náð hefur lengst í indie-tónlistargeiranum. Ólafur viðurkennir fúslega að Sigur Rósar-stimpillinn hafi farið í taugarnar á sér en hefur búið til skilgreiningu á eigin tónlist sem hann vonar að fólk kveiki á. „Þegar við vorum á tónleikaferðalagi um Bretland 2007 var alltaf verið að biðja okkur að skilgreina tónlistina. Maður var eitthvað að reyna; smá seyðandi með smá krafti og eitthvað svona bull. Svo duttum við niður á þetta - Power Ambient - og það hitti beint í mark. Og er líka töff." hdm@frettabladid.is
Mest lesið „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Lífið Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert Lífið Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Lífið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ Lífið Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd Lífið „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Lífið Lét drauminn rætast á Ítalíu Lífið Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Lífið Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Lífið Fleiri fréttir Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Sjá meira