Garðbæingar bjóða til djassveislu 22. apríl 2010 04:00 Sigurður Flosason er listrænn stjórnandi Jazzhátíðar Garðabæjar sem hefst í kvöld.
Jazzhátíð Garðabæjar hefst í kvöld og stendur fram á sunnudag. Hún er haldin í fimmta sinn en listrænn stjórnandi hátíðarinnar er Sigurður Flosason tónlistarmaður og Garðbæingur. Aðgangur er ókeypis á alla tónleika en hátíðin er haldin á vegum menningar- og safnanefndar Garðabæjar og aðalstyrktaraðili hennar er Íslandsbanki í Garðabæ. Dagskráin hefst í kvöld í Hátíðarsal Fjölbrautaskólans í Garðabæ kl. 20.30 með stórtónleikum Óskars Guðjónssonar, Mezzoforte og vandamanna. Óskar kemur fram með hljómsveit sinni og bróður síns Ómars Guðjónssonar og flytur ólíka tónlist frá ferli sínum, meðal annars eftir Jón Múla Árnason. Eftir hlé leikur Óskar með fyrstu útrásarvíkingum íslensks tónlistarlífs, súpergrúppunni Mezzoforte. Systir þeirra Óskars og Ómars, óperusöngkonan og kórstjórinn Ingibjörg Guðjónsdóttir kemur fram sem gestur á tónleikunum. Er langt síðan Mezzo kom saman og líklegt að hinn tryggi aðdáendahópur hennar flykkist á tónleikana. Stórsveit Tónlistarskóla Garðabæjar opnar tónleikana undir stjórn Braga Vilhjálmssonar. Á föstudag kl. 14 heimsækir danska djasssöngkonan Cathrine Legardh Jónshús, félags- og þjónustumiðstöð við Strikið 6 og flytur vinsæla djassstandarda ásamt traustum íslenskum meðleikurum. Um kvöldið eru einleikstónleikar Agnars Más Magnússonar í Kirkjuhvoli þar sem hann blandar saman djassstandördum og eigin verkum á lifandi og fjölbreytilegan máta. Á laugardag verða kvöldtónleikar í Kirkjuhvoli þar sem Cathrine Legardh, ein af vinsælustu djasssöngkonum Dana kemur fram og leikur með nokkrum af okkar fremstu mönnum. Cathrine Legardh flytur þekkta djassstandarda, norræn lög og eigin verk. Lokatónleikar verða í Vídalínskirkja á sunnudagskvöld kl. 20.30 þar sem kór Vídalínskirkju og Gospelkór Jóns Vídalín ásamt saxófónleikaranum Sigurði Flosasyni flytja djassspunna sálma.
Mest lesið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Menning Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Lífið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Lífið Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Lífið Fleiri fréttir Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Sjá meira