Gildran fagnar stórafmæli í kvöld 1. maí 2010 13:30 Gildran gaf á sínum tíma út sex plötur en lagðist í dvala þegar sú síðasta kom út árið 1997.
Hljómsveitin Gildran úr Mosfellsbæ heldur upp á þrjátíu ára afmæli sitt með tónleikum í Hlégarði í kvöld. Sveitin gaf á sínum tíma út sex plötur en lagðist í dvala þegar sú síðasta kom út árið 1997. „Það kom í raun aldrei annað til greina en að gera þetta hérna heima. Við erum ákaflega spenntir fyrir þessum tónleikum," segir Karl Tómasson, trymbill Gildrunnar og forseti bæjarstjórnar í Mosfellsbæ. „Við erum búnir að fá sterk viðbrögð og þetta verða skemmtilegir tónleikar, ég get lofað því. Æfingar hafa gengið eins og í sögu og það er líka svo gaman að hittast. Það er alltaf mikið hlegið," segir Karl. Undanfarin ár hefur hann verið á kafi í stjórnmálunum. Á sama tíma hefur Þórhallur Árnason bassaleikari starfað sem lögregluvarðstjóri á Eskifirði, Sigurgeir Sigmundsson gítarleikari unnið hjá Félagi íslenskra hljómlistarmanna og Birgir Haraldsson söngvari starfað sem verkstjóri hjá Ístex. Það er því ekki á hverjum degi sem þeir félagar geta hist til að rifja upp gamla tíma. „Um leið og við ákváðum að koma saman að nýju og halda upp á þetta þrjátíu ára samstarf ákváðum við líka að taka upp nýtt lag," segir Karl og á þar við Blátt, blátt sem er komið í spilun á Rás 2. Lagið er eftir Birgi söngvara en textinn eftir Vigdísi Grímsdóttur skáld. Þetta er fyrsti dægurlagatextinn sem Vigdís semur. „Það var frábært að vinna með henni, við erum afskaplega þakklátir fyrir það. Þetta var hugmynd sem dúkkaði upp hjá okkur, bara vegna aðdáunar okkar á henni sem rithöfundi." Lagið var það fyrsta sem var tekið upp í hinu glænýja hljóðveri Protime. Eigandi þess er Nikulás Róbertsson sem hefur leikið á hljómborð með Paradís og Start. Karl útilokar ekki að fleiri Gildru-lög séu væntanleg, sem ætti að kæta fjölmarga aðdáendur sveitarinnar hér á landi. „Það er ekki hægt að neita því að svona endurfundir koma blóðinu svolítið á hreyfingu. Ég er alls ekkert frá því að við eigum eftir að koma út að minnsta kosti einni plötu áður en við segjum þetta gott." freyr@frettabladid.is
Mest lesið Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Lífið Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Lífið Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“ Bíó og sjónvarp Mikil eftirspurn eftir miðum á Eclipse Festival - „Augnablik sem aldrei gleymist“ Lífið samstarf Í festival gír með Icewear Lífið samstarf Bylgjulestin brunar á Flúðir Lífið samstarf Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Lífið Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Lífið Seinleg heimför sakbitins Ódysseifs Gagnrýni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Lífið Fleiri fréttir Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Sjá meira