Fótbolti

Frökkum gengið illa á síðustu stórmótum utan 2006

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Blanc og Didier Deschamps með bikarinn góða árið 1998. Blanc tekur við liðinu í sumar og Deschamps er líklegur til að taka við af honum í framtíðinni.
Blanc og Didier Deschamps með bikarinn góða árið 1998. Blanc tekur við liðinu í sumar og Deschamps er líklegur til að taka við af honum í framtíðinni. AFP
Frakkar teljast til stórþjóða í knattspyrnu. Tveir Evrópumeistaratitlar (1984 og 2000) og Heimsmeistaratitill 1998 í heimalandinu sanna það. Sumir bestu leikmanna heims koma þaðan. Gengi þeirra á undanförnum stórmótum hefur þó verið æði misjafnt.

Frá því liðið varð Evrópumeistari árið 2000 hefur þjóðinni raunar aðeins einu sinni gengið vel. Það var á HM í Þýskalandi 2006.

Algjört andleysi ríkir yfir liðinu á HM núna og Raymond Domenech þjálfari virðist ekki njóta virðingar leikmanna sinna. Liðið komst reyndar rétt svo inn á HM eftir umspilsleiki við Íra þar sem Thierry Henry lagði upp eftirminnilegt, ólöglegt mark sem William Gallas skoraði.

Hér er gengi liðsins á síðustu stórmótum.

HM 2002 í Japan og Suður-Kóreu:

Frakkland 0-1 Senegal

Frakkland 0-0 Úrugvæ

Frakkland 0-2 Danmörk

Niðurstaðan: Neðst sætið í A-riðli og liðið skoraði ekki mark. Þjálfari var Roger Lemerre sem hætti eftir keppnina.

EM 2004 í Portúgal:

Frakkland 2-1 England

Frakkland 2-2 Króatía

Frakkland 3-1 Sviss

Niðurstaða: Liðið vann riðilinn og spilaði vel. Það tapaði þó strax í 8-liða úrslitunum fyrir Grikkjum sem urðu Evrópumeistarar. Zinedine Zidane skoraði þrjú mörk og var valinn í lið mótsins sem reyndar taldi alls 24 leikmenn. Jaques Santini var með liðið en hætti eftir keppnina og Raymond Domenech tók við.

HM 2006 í Þýskalandi:

Frakkland 0-0 Sviss

Frakkland 1-1 S-Kórea

Frakkland 2-0 Togo

Niðurstaða: Liðið komst áfram í öðru sæti riðilsins, með Sviss og vann svo stórlið Spánar (3-1) og Brasilíu (1-0) ásamt Portúgal (1-0). Það tapaði svo eftirminnilega í úrslitaleiknum gegn Ítölum (0-1). Þjálfari var Raymond Domenech.

EM 2008 í Austurríki og Sviss:

Frakkland 0-0 Rúmenía

Frakkland 1-4 Holland

Frakkland 0-2 Ítalía

Niðurstaða: Liðið fór heim með skottið á milli lappanna, með aðeins eitt stig og eitt mark. Þjálfari var Raymond Domenech.

HM 2010 í Suður-Afríku:

Frakkland 0-0 Úrugvæ

Frakkland 2-0 Mexíkó

Frakkland - Suður Afríka - 22. júní

Niðurstaða: Frakkar verða að vinna og treysta á hagstæð úrslit til að komast áfram. Liðið hefur ekki spilað vel, ekki skorað og óeining ræður ríkjum. Þjálfari er Raymond Domenech en hann hættir eftir mótið og Lorent Blanc tekur við.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×