Borgarleikhúsið stefnir hátt í vetur Tinni Sveinsson skrifar 20. ágúst 2010 11:09 Enron verður frumsýnt á stóra sviðinu nú í september. Sýningin fjallar um brjálæðis dramb og fall á fjármálamarkaði og á sennilega hvergi betur heima en á Íslandi í dag.
Borgarleikhúsið svipti hulunni af næsta leikári í dag en bæklingi frá leikhúsinu er dreift á öll heimili. Stóru leikhúsin tvö haldast í hendur í þessum málum. Þjóðleikhúsið kynnir sitt leikár á morgun en þá fylgir bæklingur þess með Fréttablaðinu. Magnús Geir Þórðarson Borgarleikhússtjóri og hans fólk stefna á að standa sig jafn vel og í fyrra. Þá var sett met í aðsókn, áskritarkortasölu og Grímutilnefningum. Fjölmargar sýningar verða í boði, nýjar og frá fyrra leikári. Við rennum yfir nokkrar þeirra hér fyrir neðan en hægt er að kynna sér leikárið betur á vef Borgarleikhússins. Fólkið í kjallaranumÍ október verður frumsýnd leikgerð Ólafs Egils Egilssonar á samnefndri sögu Auðar Jónsdóttur, sem vann Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2004. Auður er einmitt fyrsta fastráðna leikskáld Borgarleikhússins og vinnur nú að ritun verks fyrir leikhúsið. Kristín Eysteinsdóttir leikstýrir. Með aðalhlutverk fara Ilmur Kristjánsdóttir, Guðjón Davíð Karlsson, Sigrún Edda Björnsdóttir, Jóhann Sigurðsson og Þröstur Leó Gunnarsson. HúsmóðirinVesturport frumsýnir farsakennda gamanleikinn Húsmóðurina í apríl. Í viðtali sem lesa má hér á Vísi sagði Gísli Örn að hugmyndin hafi kviknað í kringum fréttir af mansali og vændi á Íslandi. „Þetta var á þeim tíma þar sem við veltum því fyrir okkur hvað við ættum að gera næst. Og í kjölfarið vildum við fjalla um húsmóður sem er ekki öll þar sem hún er séð og hvað það þýðir að vera húsmóðir," sagði Gísli. Verkið er skrifað af Víkingi Kristjánssyni, Birni Hlyni Haraldssyni, Nínu Dögg, Jóhanni Níels og Gísla Erni. Nei, ráðherra!Magnús Geir leikhússtjóri sest í leikstjórastólinn eftir áramót og heldur um taumana á farsanum Nei, ráðherra! Búast má við miklu fjöri og skemmtilegum hópi leikara. Verkið hlaut Oliver verðlaun sem besti gamanleikurinn í Bretlandi og hefur slegið rækilega í gegn víða. Gísli Rúnar Jónsson þýðir. OfviðriðJólasýning Borgarleikhússins er Ofviðri Shakespeares í meðförum eins fremsta leikstjóra heims, Oscaras Korsunovas. Undibúningur hefur staðið í tvö ár og hér öllu er tjaldað til - að sýningunni koma Íslenski dansflokkurinn, sterkur hópur listrænna stjórnenda og meðal leikara eru Hilmir Snær Guðnason og Ingvar E. Sigurðsson. Strýhærði PéturÍ mars verður frumsýnt óhefðbundið verk, hryllilega krassandi ruslópera með tónlist Tiger Lillies. Þessi verðlaunasöngleikur er byggður á gömlum barnagælum þar sem svartur húmor og grípandi tónar ráða ríkjum. Áhorfendur eru leiddir um rýmið í óvenjulegu standandi leikhúsdjammi, segir í tilkynningu. Leikstjórn er í höndum Jóns Páls Eyjólfssonar en leikarar eru Hilmir Snær Guðnason, Halldóra Geirharðsdóttir, Halldór Gylfason, Þröstur Leó Gunnarsson, Kristín Þóra Haraldsdóttir, Hallgrímur Ólafsson og Hallur Ingólfsson. Horn á höfði Horn á höfði var valin barnasýning ársins á Grímunni í vor. Verkið var sýnt í Grindavík en mætir á litla sviðið í Borgarleikhúsinu í haust.Horn á höfði er grallaralegt ævintýri eftir Berg Þór Ingólfsson og Guðmund Brynjólfsson en Bergur er einnig leikstjóri. Verkið segir frá Birni sem vaknar einn morguninn með horn á höfðinu. Hann fær vinkonu sína til að hjálpa sér við að rannsaka málið og þá upphefst atburðarás á mörkum ævintýris og veruleika. Víðir Guðmundsson, Sveinn Ólafur Gunnarsson og Sólveig Guðmundsdóttir leika. Elsku barnUng móðir er sökuð um að hafa myrt börn sín tvö. Þó er alls ekki ljóst hvort um morð er að ræða eða sorglegt slys. Málið vekur athygli almennings og áhuga hinna ólíklegustu aðila. Leikritið er byggt á opinskáum viðtölum við alla aðila málsins.Jón Páll Eyjólfsson leikstýrir.Tímatafla yfir leikárið. Ýtið á myndina til að skoða hana nánar.
Mest lesið „Ég trúði því aldrei að ég yrði þessi gaur“ Lífið Sonur Rögnu og Árna kominn með nafn Lífið Frumsýning á Vísi: Eldgos, hamfarir og ást í kitlu fyrir Eldana Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Maraþon, brúðkaup og gellugallinn Lífið Skúli hannaði hof fyrir Grímu Lífið Fagurkeri selur miðbæjarperlu Lífið Þetta eru keppendur Ungfrú Ísland Teen 2025 Lífið Kom með blóðugar tær í mark eftir heilt maraþon berfættur Lífið Hegðun Benedikts kom upp um bónorðið Lífið „Hjálpar okkur í að nýta þjónustu sem er ekki til á Íslandi í dag en ætti að vera til“ Lífið Fleiri fréttir Þetta eru keppendur Ungfrú Ísland Teen 2025 Hegðun Benedikts kom upp um bónorðið „Hjálpar okkur í að nýta þjónustu sem er ekki til á Íslandi í dag en ætti að vera til“ Fagurkeri selur miðbæjarperlu „Ég trúði því aldrei að ég yrði þessi gaur“ Sonur Rögnu og Árna kominn með nafn Stjörnulífið: Maraþon, brúðkaup og gellugallinn Myndaveisla: Vestri fékk konunglegar móttökur á Ísafirði Kom með blóðugar tær í mark eftir heilt maraþon berfættur Tóku hlé í miðju hlaupi til að halda tónleika Skúli hannaði hof fyrir Grímu Fann nýjan tilgang í kjölfar lömunar í kraftlyftingum Eyðir afmælisdegi dótturinnar í fasteignadeilur Eini dagurinn sem hægt er að fara upp í Gróttuvita Krakkatía vikunnar: Menning, bangsar og líffæri Veggjadans á Hörpu og snyrtivörur úr sælgæti Miklar tilfinningar og mikil stemning í Reykjavíkurmaraþoninu Serena Williams opnar sig um notkun þyngdarstjórnunarlyfja 99 ára gömul tombóla á Borg í Grímsnesi og engin núll Fréttatía vikunnar: Svíþjóð, sektir og vextir Bjargaði lífi systur sinnar ellefu ára gömul Níu ástæður fyrir því að stunda morgunkynlíf Bragðgóðar kalkúnabollur í kókos og límónusósu Hörður Björgvin kom Móeiði á óvart HAF-hjónin breyta vídjóleigu í bakarí Ari og Helga Lilja flytja á milli glæsihúsa í Garðabæ Mamman grét, eiginmaðurinn fraus en Veru var létt Innlit í nýtt svefnhólfahótel við Hverfisgötu Millie Bobby Brown og Bongiovi hafa ættleitt stúlku Fullkomið og fór langt fram úr væntingum Sjá meira